fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Fréttir

30 missa vinnuna hjá Póstinum – Hætta líka dreifingu á fjölpósti

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 29. janúar 2020 09:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frá og með 1. maí næstkomandi mun Pósturinn hætta dreifingu á ónafnamerktum fjölpósti á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesi, Selfossi og Akranesi. Pósturinn mun halda áfram bjóða upp á dreifingu á fjölpósti á öðrum svæðum og í dreifbýli. Þessi breyting leiðir til um 200 milljóna króna lækkunar kostnaðar á ársgrundvelli hjá fyrirtækinu. Breytingin mun einnig hafa í för með sér að um 30 starfsmönnum verður sagt upp frá og með deginum í dag.

„Magn fjölpósts hefur dregist mikið saman á undanförnum árum og mikil fækkun almennra bréfa hefur haft það í för með sér að minni samlegðaráhrif eru á dreifingu bréfapósts og fjölpósts. Áður fóru bréfberar í nær öll hús með bréf og því féll það vel að starfseminni að dreifa fjölpósti á sama tíma en nú hefur bréfum fækkað svo mikið að oft fara bréfberar eingöngu með fjölpóst en engin bréf og því er lítill rekstrargrundvöllur fyrir þessari þjónustu.

Einnig ber að horfa til þess að sífellt stærri hópur almennings vill ekki fá fjölpóst, m.a. vegna umhverfissjónarmiða, og hefur sá hópur stækkað mikið á síðustu misserum. Sú þróun mun halda áfram með aukinni umhverfisvitund almennings og þróun á stafrænum lausnum. Þetta leiðir til þess að mikið magn pappírs sem sent er í dreifingu verður eftir í kerfi Póstsins sem flækir starfsemina og skapar kostnað og óhagræði.

Breytingin hefur áhrif á um 40 starfsmenn en mögulegt er að færa um 10 starfsmenn til í starfi innan fyrirtækisins. Rúmlega 30 starfsmönnum verður því sagt upp störfum frá og með deginum í dag og er þar um að ræða starfsmenn í flokkun og dreifingu á svæðinu sem um ræðir. Rætt verður við þá starfsmenn sem missa vinnuna í dag en ekki verður óskað eftir starfsframlagi á uppsagnartímanum. Að auki verður þeim starfsmönnum sem missa vinnuna boðinn stuðningur við starfslokin svo sem sálfræðiþjónusta og ráðgjöf við atvinnuleit. Pósturinn hefur tilkynnt uppsagnirnar til Vinnumála-stofnunar, stéttarfélaga og annarra sem hlut eiga að máli,“ segir í tilkynningunni.

„Eins og kunnugt er fer nú fram mikil endurskipulagning á starfsemi Íslandspósts og eru þessar aðgerðir hluti af því ferli. Umbreyting fyrirtækisins hefur gengið vel og nú þegar má merkja viðsnúning í rekstrinum en ljóst er að verkefninu er hvergi nærri lokið og betur má ef duga skal. Við erum önnum kafin við að aðlaga reksturinn að kröfum á nútíma markaði en í svona endurskipulagningu þarf að horfast í augu við staðreyndir og taka margar erfiðar ákvarðanir, þessi ákvörðun er ein þeirra. Ég þakka því góða starfsfólki sem nú kveður okkur fyrir vel unnin störf og óska þeim góðs gengis í næstu verkefnum“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Póstsins.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Faðir lýsir ófremdarástandi í leiguhúsnæði Félagsbústaða í Írabakka – Box undir sprautunálar rétt hjá barnaleikvelli

Faðir lýsir ófremdarástandi í leiguhúsnæði Félagsbústaða í Írabakka – Box undir sprautunálar rétt hjá barnaleikvelli
Fréttir
Í gær

Ásthildur hissa – „Ekki í vafa um að bæjaryfirvöld á Akureyri munu hafna því alfarið að fjarlægja hjörtun“

Ásthildur hissa – „Ekki í vafa um að bæjaryfirvöld á Akureyri munu hafna því alfarið að fjarlægja hjörtun“
Fréttir
Í gær

Par á Austurlandi ákært fyrir að halda dreng nauðugum

Par á Austurlandi ákært fyrir að halda dreng nauðugum
Fréttir
Í gær

Dómur þyngdur yfir Ásgeiri Þór fyrir jólaskotárásina á Hvaleyrarholti – Skaut sex skotum að 9 ára stúlku og föður hennar

Dómur þyngdur yfir Ásgeiri Þór fyrir jólaskotárásina á Hvaleyrarholti – Skaut sex skotum að 9 ára stúlku og föður hennar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Trump er öskureiður og krefst breytinga – „Þetta kostar landið okkar milljarða“

Trump er öskureiður og krefst breytinga – „Þetta kostar landið okkar milljarða“