Miðað við orð Guðrúnar Benediktsdóttur eru sterk tengsl á milli máls hennar er varðar meint sýndarhjónaband við íraska Kúrdann Aras Nasradeen Kak Abdullah og máls sem DV fjallaði um í gærkvöld um grunsemdir þess efnis að byggingarfyrirtæki stundi svarta atvinnustarfsemi með hælisleitendum sem smyglað sé til landsins.
Eins og margoft hefur komið fram í fréttum DV giftust Guðrún og Aras árið 2017 en kynni þeirra hófust með því hann gaf sig á tal við hana á Facebook. Tuttugu og tveggja ára aldursmunur er á þeim, Aras er 32 ára og Guðrún 54 ára. Fyrir meira en ári síðan flutti Aras út frá Guðrúnu og þó að hún hafi ekki séð hann síðan eru þau enn gift og tilraunir hennar til að fá skilnað frá manninum hafa verið árangurslausar. Hefur Aras verið stefnt fyrir héraðsdóm til skilnaðar, málið hefur verið þingfest og fyrirtaka verður í janúar.
Guðrún segir að hjónaband hennar hafi verið svikamylla og Aras hafi látið sig hverfa um leið og hann hafði í höndum öll gögn sem tryggðu honum leyfi til að búa og stunda atvinnu á Íslandi.
Sterkur orðrómur er um fleiri meint sýndarhjónabönd af þessu tagi, þ .e. hjónabönd sem stofnað er til í því skyni að komast yfir dvalarleyfi, kennitölu og tækifæri til að stunda atvinnu á Íslandi, en ekki er ljóst hvort um fáein tilvik sé að ræða eða umfangsmikinn vanda.
Í gærkvöld birti DV frétt með viðtali við eftirlitsfulltrúa stéttarfélaga á vinnustöðum. Var greint þar frá atviki sem átti sér stað fyrir tveimur vikum þar sem tveir eftirlitsfulltrúar mættu á vinnusvæði byggingarfyrirtækis í Reykjavík þar sem grunur lék á að á meðal járnabindingamanna væru þrír ólöglegir starfsmenn. Tveir þeirra voru á staðnum, annar þeirra, sem er frá Kosovo, flýði af vettvangi, en hinn sem er Íraki og gat ekki framvísað öðrum pappírum en löngu útrunnu bráðbirgðardvalarleyfi, var handtekinn af lögreglu sem kom á vettvang. Virðist honum hafa verið smyglað hingað til lands frá Svíþjóð og hefur hann starfað hér svart í þrjú ár og ávallt fengið útborgað í reiðufé en aldrei með millifærslum.
Áður hefur komið fram í samtölum DV við Guðrúnu að hún staðhæfir að Aras vinni hjá þeim aðilum sem hér eiga í hlut. Guðrún ítrekaði þetta í samtali við DV í gærkvöld. „Ég horfði á Aras telja peningaseðlana handa þessum mönnum sem þarna unnu, hann gerði það hérna heima hjá mér, og hann færði upplýsingar um launin þeirra inn í bók,“ segir Guðrún.
Guðrún fullyrðir enn fremur að Aras hafi sterk tengsl við mann sem dæmdur var fyrir ólöglegan flutning á fólki hingað til lands árið 2017. RÚV greindi frá því máli og í fréttinni sagði meðal annars:
„Maður, sem starfar sem leigubílstjóri í Svíþjóð, var í Héraðsdómi Reykjaness dæmdur í níu mánaða fangelsi, þar af sex mánuði skilorðsbundna, fyrir að hafa aðstoðað fjögurra manna fjölskyldu frá Írak að ferðast ólöglega til Íslands frá Kaupmannahöfn. Fjölskyldunni hafði verið neitað um hæli í Þýskalandi og hjónin báru manninn þeim sökum við lögregluna á Suðurnesjum að hann hefði smyglað þeim til landsins. Hann neitaði sök og sagðist hafa verið að gera vini sínum greiða.
Maðurinn, sem sat fimm vikur í gæsluvarðhaldi vegna málsins, var einnig sakfelldur fyrir að hafa reynt að hafa áhrif á vitnisburð hjónanna með hótunum í strætisvagni og krafist þess að þau breyttu honum.“
Fólkið borgaði manninum tæplega 400 þúsund krónur fyrir flutninginn til landsins. Ekki taldist sannað að maðurinn hefði staðið að skipulegri starfsemi til að aðstoða útlendinga við að koma ólöglega til landsins eins og ákæruvaldið staðhæfði.
Umræddur maður starfaði sem leigubílstjóri í Svíþjóð en Guðrún staðhæfir að Aras hafi búið hjá honum er hann bjó um skeið í Svíþjóð árið 2017. Segir hún að sterk tengsl séu milli mannanna.
Byggingarfélag grunað um að flytja flóttamenn til Íslands í svarta vinnu – Lyktar af mansali
Guðrún leitar að manninum sínum svo hún geti skilið við hann