Rannsókn lögreglu á rútuslysi við Suðurlandsveg við Hofgarð á Öræfum í maí er nú á lokametrum, samkvæmt tilkynningu frá lögreglu. Samkvæmt ökurita rútunnar var ekki ekið umfram leyfðan hámarkshraða og rútubílstjórinn var ekki undir áhrifum áfengi eða vímuefna við aksturinn. Enn mun vera beðið eftir vottorðum einstakra farþega sem gæti tekið einhvern tíma.
Slysið varð þann 16. maí síðast liðinn og voru 32 farþegar um borð í rútunni. Fjórir þeirra voru fluttir alvarlega slasaðir með þyrlu á sjúkrahús. Í tilkynningu lögreglunnar segir:
„Slys þetta reyndi um margt á ýmsa þætti fjölmargra viðbragðsaðila vegna hópslysa. Þannig voru sjúklingar fluttir með flugvél LHG [Landhelgisgæslunnar] frá Höfn til Akureyrar, með þyrlu LHG og annarri slíkri af dönsku varðskipi til Reykjavíkur og að auki fór flugvél frá Norlandair tvær ferðir með sjúklinga frá Fagurhólsmýri á Selfoss. Þannig tókst með skjótum hætti að koma öllum aðilum úr slysinu á sjúkrastofnun án þess að viðkomandi þyrftu að fara langar leiðir í bílum af vettvangi. Það reyndist mikilvægt því enda þótt flestir farþeganna hafi við bráðaflokkun fengið matið „Grænn“ sem með ákveðinni einföldun þýðir „með meðvitund og getur gengið sjálfur af vettvangi“ þá voru áverkar þeirra alvarlegir og dæmi um að þeir hafi þurft umtalsverða læknisaðstoð þegar á leið. Þá þurfti heilbrigðisstarfsfólk og hjálparliðar Rkí að finna leiðir til að tengja fjölskyldur sem á stundum lentu á sitt hvorum landshlutanum þar sem hlúð var að meiðslum þeirra.“
Lögregla telur aðgerðir á vettvangi hafa tekist vel og þakkar öllum sem að málinu komu sérstaklega vel fyrri góð og vel unnin störf. Af rannsókn sé ljóst að fáir farþegar voru í öryggisbelti þegar slysið varð og ljóst að áverka farþega hefðu orðið mun minni í mörgum tilfellum ef beltin hefðu verið notuð.
Þegar rannsókn slyssins hefur verið lokið verður málið sent til ákæruvaldsins sem tekur ákvörðun um framhald. Eins verða gögn afhent Rannsóknarnefnd samgönguslysa.
Sjá einnig: Rútuslys á Suðurlandsvegi – Þyrla Landhelgisgæslunnar send á vettvang