fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Sergey Gaysin dæmdur fyrir brot gegn fyrrverandi eiginkonu

Hjálmar Friðriksson
Laugardaginn 30. mars 2019 13:00

Sergey Gaysin DV hefur áður greint frá málum honum tengdum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hinn rússneski Sergey Gaysin var nýlega dæmdur fyrir hótanir og blygðunarbrot gegn fyrrverandi eiginkonu sinni. Hann hefur áður hlotið dóm fyrir líkamsárás á hana og DV greint ítarlega frá þeim málum. Meðan á afplánun stóð var hann handtekinn vegna gruns um fíkniefnainnflutning og spurningar hafa vaknað um hvort hann verði kyrrsettur á landinu þar til þau mál leysast eða verði vísað úr landi.

 

Sendi kynlífsmynd á fjölskyldu þolanda

Sergey Gaysin, rússneskur ríkisborgari, hlaut fjögurra mánaða fangelsisdóm fyrir blygðunarbrot, hótanir og stórfelldar ærumeiðingar gegn fyrrverandi eiginkonu sinni. Sendi hann, þann 28. febrúar árið 2016, mynd af henni í kynlífsathöfn á fjölskyldumeðlimi og unnusta hennar. Einnig skilaboð sem fólu í sér hótanir um að myndinni og kynlífstengdum myndböndum af henni yrði dreift á netinu.

Sergey var dæmdur þann 8. mars síðastliðinn í Héraðsdómi Reykjavíkur. Auk fangelsisvistar var hann dæmdur til að greiða fyrrverandi eiginkonu sinni 700 þúsund krónur í miskabætur auk málsvarnarlauna og réttargæsluþóknunar. Sergey játaði brot sín skýlaust og var það virt til refsilækkunar.

Rannsókn málsins lauk í mars árið 2016 en ákæra ekki birt fyrr en nítján mánuðum eftir brotin. Hann var erlendis lengi og var handtekinn í desember síðastliðnum þegar hann kom aftur til landsins undir fölsku nafni. Hefur hann setið á Litla-Hrauni síðan.

 

Stórt fíkniefnamál

Í byrjun febrúar var greint frá því að tveir einstaklingar sætu í gæsluvarðhaldi Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum vegna umfangsmikils fíkniefnamáls. Annar þeirra er Sergey sem handtekinn var á Litla-Hrauni. Um er að ræða sjö tilvik á árunum 2017 og 2018 þar sem samtals sjö kílógrömmum af kókaíni var smyglað til lands, annars vegar með farþegaflugi í Keflavík og Reykjavík og hins vegar póstsendingum.

Karl Steinar Valsson, lögreglumaður sem fer með rannsókn málsins, sagði við DV að málið væri enn í rannsókn og stefnt væri að því að klára það í byrjun apríl. Ekki væri því enn búið að gefa út ákæru. Hann vildi ekki segja til um hvort játningar lægju fyrir en staðfesti að hinn einstaklingurinn væri núverandi eiginkona Sergeys. Hún er af erlendu bergi brotin en í fréttum hefur áður komið fram að hann sé talinn höfuðpaurinn í málinu.

Karl sagðist ekki geta svarað að svo stöddu hvort Sergey yrði vísað úr landi eftir afplánun í sumar. Spurningar hafa vaknað um hvort Sergey yrði kyrrsettur á landinu ef fíkniefnamálið dregst á langinn.

Brenndur bílskúr
Sigurlaug sagði Gaysin liggja undir grun.

Líkamsárás á sömu konu

DV hefur áður fjallað um mál tengd Sergey Gaysin. Þann 31. janúar árið 2017 hlaut hann fjögurra mánaða fangelsisdóm fyrir líkamsárás á eiginkonu sína. Hafði hann þá kýlt hana með krepptum hnefa í andlitið, gripið um handleggi hennar, snúið hana niður í gólf og haldið henni þar, ásamt því að þrýsta framhandlegg að hálsi hennar.

Þá hefur hann gengist undir fjórar lögreglusáttir fyrir umferðarlagabrot frá árinu 2013 og í eitt skipti fannst metamfetamín og kannabis í þvagprufu hans.

Í ágúst árið 2017 greindi DV frá því að spreyjað hefði verið á bíla konunnar og annarra nákominna. Umræddir bílar voru hver í sínu sveitarfélagi. Sergey neitaði sök og sagðist hafa verið erlendis. Sumarið 2016 greindi DV frá því að kveikt hefði verið í bílskúr, skorið í morgunverðartjald og húsgögn með dúkahníf á gistiheimili við Flókagötu. Sigurlaug Rúna Guðmundsdóttir, eigandi gistiheimilisins, sagði að Sergey lægi undir grun en hún var með umgengnisrétt tveggja barna fyrir hönd ættingja. Sagði hún að Sergey væri ósáttur við fyrirkomulag sýslumanns.

Sergey var ákærður fyrir að hafa hótað fyrrverandi eiginkonu sinni í tölvupósti. Viðurkenndi hann að hafa sent póstinn þar sem meðal annars stóð:

„Ég skal gera líf þitt að hreinu helvíti, hrekja þig út í sjálfsmorð, bannsett druslan þín og þegar þú lætur verða af því tek ég af þér stærðarinnar mynd svo þú getir notið þess þegar þú mætir í Víti að vera merkileg persóna.“

Var hann sýknaður af ákærunni þar sem engin bein hótun um refsiverðan verknað þótti felast í orðunum.

Skemmdur bíll
Sergey neitaði að hafa spreyjað á hann.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa
Fréttir
Í gær

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Í gær

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Fréttir
Í gær

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum