fbpx
Miðvikudagur 26.nóvember 2025
Fréttir

Elmar greinir misjöfnun og segir transfólk haldið geðveiki: „Þeir einu sem dæma eru skoðanafasistar íslensku hjarðarinnar“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 27. júlí 2018 12:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Elmar Bjarnason, landsliðsmaður í fótbolta, hefur undanfarið látið sig málefni jafnrétti kynjanna varða og fjallað talsvert um femínisma á Twitter-síðu sinni. Á dögunum sagði hann til að mynda að feðraveldið væri samsæriskenning, en eyddi því tísti.

Nú segir beinir hann sjónum sínum að launamisrétti. „Var að komast að því að menn fá 75% minna borgað en konur í módel bransanum! Þetta er að sjálfsögðu bara misjöfnun og hefur ekkert að gera með það að fyrirtækin græði meira á kvenkyns módelum, og þar af leiðandi eiga þær meira skilið,“ skrifar Elmar á Twitter.

Þess má geta að á mánudaginn sagði Elmar á Twiter að transfólk væri haldið geðveiki. „Eftir umræðu undanfarna daga hefur enn og aftur komið í ljós að þeir einu sem dæma eru skoðanafasistar íslensku hjarðarinnar. Ég er ekki að segja að vera transgender sé einungis geðrænn sjúkdómur heldur sýna rannsóknir að geðsjúkdómar eru mun algengari meðal transfólks, það er staðreynd,“ skrifaði Elmar á Twitter.

Hann segist þó engan dæma. „Ég dæmi engan útfrá húðlit, kyni eða kynhneigð og hef aldrei gert. Ef þessi pólitíska hreyfing sem transgenderhreyfingin er væri bar að berjast fyrir meira frelsi og meiri rétt fyrir fullorðið fólk sem má skilgreina sig, og gera það sem það vill við eigin líkama, þá hefði ég aldrei verið með neinar athugasemdir þótt ég sé ekki sammála hugmyndafræðinni,“ segir Elmar.

Hann segir að staða mála í Kanada hafi haft áhrif á skoðun sína. „En í dag eru kominn lög í Kanada sem gæti tekið börn frá foreldrum ef þau samþykkja ekki transgender hugmyndafræðina, byggt á litlum sem engum rannsóknum. Rannsóknir eru sammála um það að börn sem glíma við þetta vaxa í flestum tilfellum upp úr þessum hugsunum, en þrátt fyrir það er verið að gefa börnum hormóna til þess að stöðva þau á kynþroskaskeiðinu. Þetta getur haft varanleg áhrif á barn sem að öllum líkindum hefði vaxið frá þessum tilfinningum,“ skrifar Elmar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hamed í fimm ára fangelsi eftir hryllinginn við Skyggnisbraut – Hending ein að ekki hlaust mannsbani af

Hamed í fimm ára fangelsi eftir hryllinginn við Skyggnisbraut – Hending ein að ekki hlaust mannsbani af
Fréttir
Í gær

Lögmaður í haldi á Hólmsheiði vegna gruns um skipulagða glæpastarfsemi

Lögmaður í haldi á Hólmsheiði vegna gruns um skipulagða glæpastarfsemi
Fréttir
Í gær

Neitað um bætur eftir að farþega blæddi stanslaust

Neitað um bætur eftir að farþega blæddi stanslaust
Fréttir
Í gær

Bóndi fékk háa sekt – Vildi ekki segja hvenær hann aflífaði kind sem enn er skráð lifandi

Bóndi fékk háa sekt – Vildi ekki segja hvenær hann aflífaði kind sem enn er skráð lifandi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn varpar ljósi á brjálæðislegt álag – „Staða sem á ekki að koma upp á sjúkrahúsi í velmegandi ríki árið 2025“

Steinunn varpar ljósi á brjálæðislegt álag – „Staða sem á ekki að koma upp á sjúkrahúsi í velmegandi ríki árið 2025“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pétur hættir sem forstjóri Reykjalundar

Pétur hættir sem forstjóri Reykjalundar