fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fréttir

8 ökumenn í vímu handteknir – Var með röng skráningarnúmer á bifreið sinni

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 14. júní 2017 05:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók 8 ökumenn í gærkvöldi og nótt en þeir eru allir grunaðir um að hafa ekið undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Ökumaður sem lögreglumenn höfðu afskipti af í gærkvöldi reyndist vera sviptur ökuréttindum og fékk hann því ekki að halda för sinni áfram. Einn ökumaður var kærður fyrir að aka á 116 km/klst á Miklubraut í gærkvöldi en leyfður hámarkshraði þar er 60 km/klst.

Tveir hinna handteknu ökumanna reyndust ekki hafa endurnýjað ökuréttindi sín. Sá þriðji reyndist hafa verið sviptur ökuréttindum áður og var með röng skráningarnúmer á bifreiðinni sem hann ók. Sá fjórði reyndist einnig hafa verið sviptur ökuréttindum áður. Sá fimmti er grunaður um vörslu fíkniefna auk þess að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna.

Á þriðja tímanum var tilkynnt um eignaspjöll í vesturbæ Reykjavíkur. Þar hafði einhver/einhverjir fengið útrás fyrir aumar og annarlegar hvatir og brotið allar rúður í bifreið sem var lagt í bifreiðastæði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Sólveig Anna með óvænta skoðun á styttingu atvinnuleysisbótatíma – „Nú verð ég sennilega drepin“

Sólveig Anna með óvænta skoðun á styttingu atvinnuleysisbótatíma – „Nú verð ég sennilega drepin“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Líflegar umræður eftir að Stefán Máni sagði það pólitískan réttrúnað að segja „gleðilega hátíð“ – „Þetta er innflutt tuð“

Líflegar umræður eftir að Stefán Máni sagði það pólitískan réttrúnað að segja „gleðilega hátíð“ – „Þetta er innflutt tuð“