Harry Styles gaf út nýja plötu, Fine Line, í síðustu viku. Hann mætti í spjallþátt Ellen DeGeneres til að ræða um plötuna og ræddu þau meðal annars um myndatökuna fyrir plötuna. Hann lýsir því hvernig hann fór úr því að vera fullklæddur og endaði nakinn.
„Við prófuðum þetta í öðrum hlutum og þetta var svona: Þessi skyrta er ekki að virka þannig prófum þetta án skyrtunnar. Síðan voru buxurnar ekki alveg að virka og best að prófa þetta án þeirra. Og síðan horfði [ljósmyndarinn á mig] og ég spurði þá: „Þessar nærbuxur eru ekki að virka heldur er það?“ Og hann sagði nei,“ segir Harry Styles.
„Sniðugt, að hann fór svona að þessu,“ segir Ellen.
Horfðu á spjall þeirra hér að neðan. Þú getur hlustað á plötuna hans á Spotify.