fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Jeffree Star segir frá klikkaðri orgíu: „Það mesta sem ég hef náð inn í einu eru tveir, og það tók alveg mínútu“

Ritstjórn Bleikt
Mánudaginn 6. janúar 2020 13:30

Jeffree Star.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

 

Jeffree Star er bandarísk samfélagsmiðlastjarna og snyrtivörumógull. Hann er afar vinsæll á YouTube, með yfir 17 milljón fylgjendur, og á fyrirtækið Jeffree Stars Cosmetics.

Jeffree var gestur í þætti YouTube-stjörnunnar Trishu Paytas á dögunum og fór um víðan völl. Hann talaði meðal annars um neikvæð ummæli á samfélagsmiðlum og sagði frá klikkaðri orgíu sem hann tók þátt í.

Í þættinum er Jeffree að tala um leiðindi á Twitter og fær sér síðan smók úr kannabis rafrettu sinni. Hann hvíslar svo: „Hæ, það voru fimm gaurar að fá það inn í mig.“

„Fimm gaurar að fá það inn í þig, ég veit ekki hvort það sé mögulegt,“ segir þá Trisha.

„Umm, jú ef þú ert með lausan klukkutíma,“ segir þá Jeffree og hlær.

Trisha spyr hann þá hvort allir fimm séu með typpið inn í honum í einu og svarar hann neitandi. „Það mesta sem ég hef náð í einu eru tveir, og það tók alveg mínútu,“ segir hann.

Jeffree og Nathan.

Jeffree er í sambandi með Nathan og hefur verið það síðastliðin ár. Hann er mjög opin um kynlíf og opið samband þeirra. Þeir fara reglulega í trekant með öðru fólki.

Jeffree segir að hann hafi eitt sinn farið í orgíu með fimm öðrum karlmönnum en það var fyrir tíma Nathans.

Jeffree og Nathan eiga mjög stórt rúm og voru að kaupa sér nýtt og enn stærra rúm sem er 3 metrar á breidd og 2,7 metrar á lengd. Hann segist þó aldrei hafa haldið kynlífspartý, aðeins farið í slík.

Horfðu á viðtalið hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Liverpool taki ekki í mál að selja

Liverpool taki ekki í mál að selja
Pressan
Fyrir 3 klukkutímum

Íranir gerðu árás á eina stærstu olíuhreinsunarstöð heims – „Veruleg stigmögnun“

Íranir gerðu árás á eina stærstu olíuhreinsunarstöð heims – „Veruleg stigmögnun“
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Allt að 30 ára bið eftir geðlæknisþjónustu – ,,Það ræður ekkert kerfi við þetta”

Allt að 30 ára bið eftir geðlæknisþjónustu – ,,Það ræður ekkert kerfi við þetta”
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Warnock snýr aftur í þjálfun

Warnock snýr aftur í þjálfun
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Hlaut verðlaun rúmum mánuði eftir andlát sitt

Hlaut verðlaun rúmum mánuði eftir andlát sitt
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Davíð Oddsson er látinn

Davíð Oddsson er látinn
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Hvíti dauðinn – Þögli Finninn sem Rússar gleyma ekki

Hvíti dauðinn – Þögli Finninn sem Rússar gleyma ekki

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.