fbpx
Föstudagur 26.desember 2025

Lesið í tarot Jóns Gnarr: Gæti sest á valdastól fyrr en hann grunar

Ritstjórn Bleikt
Laugardaginn 19. október 2019 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Gnarr, spéfugl og fyrrverandi borgarstjóri, hefur marga fjöruna sopið og margir bíða spenntir eftir því sem hann tekur sér næst fyrir hendur. DV ákvað því að leggja fyrir hann tarotspil til að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér, en áhugasamir lesendur DV geta dregið sín eigin tarotspil á vef DV.

Góður við sjálfið

Fyrsta spilið sem kemur upp hjá Jóni er Sólin. Í hans lífi ríkir mikil gleði, mýkt og jafnvægi og einkennist af sköpun, gleði, allsnægtum og fullnægju. Jón gerðist nýlega vegan og hefur það breytt lífsstíl hans og líðan til muna. Hann nýtur einmitt þeirrar blessunar að hann hugsar ávallt vel um innra jafnvægi og er meðvitaður um að fylla líf sitt af kærleik. Hann er góður við sjálfið og það sést. Jón á sér stóra drauma og vinnur jákvætt og markvisst að þessum draumum einmitt á þessum tíma. Hann hefur mikinn metnað og er hvergi banginn. Óskir hans eru sannarlega raunhæfar og verða þær að veruleika fyrr en hann grunar. Hann mun öðlast það vald sem hann sækist eftir og mun þetta nýja verkefni gefa honum mikla hamingju.

Sár fortíð

Þetta verkefni gæti vel tengst pólitík þar sem næsta spil hjá Jóni er 9 stafir. Það spil er um margt mjög táknrænt. Bæði táknar það léttleikann sem einkennir Jón á efri árum, enda veit hann að of mikil alvara þjónar engum tilgangi, og einnig fortíðina, sem hefur oftar en ekki verið stormasöm. Þessi sára reynsla fortíðarinnar drífur Jón áfram í að öðlast velgengni í starfi. Hann hefur upplifað þjáningu og vandamál í æsku en þau efla kjark hans. Jón býr yfir styrk á við heilan her. Hann kann líka að læra af reynslunni og ætlar að nýta öll mistök fortíðarinnar til góðs í þessu nýja verkefni.

Heppinn

Loks er það Hamingjuhjólið. Það er líkt og heillastjarna skíni yfir Jóni. Hann er mjög heill maður og því gefur hann af sér gleði og kærleik og fær það tífalt til baka. Hann þarf að einhverju leyti að gefa sig á vald örlaganna því framtíðin mun koma honum skemmtilega á óvart og færa honum betri tíma. Hann er heppinn og hamingjuhjólið snýst honum í hag. Almenn vellíðan er framtíðin og enginn tími fyrir erfiðleika og ónot. Jón veit að göfgi verður að fylgja göfugum tilgangi og skrefin sem hann stígur um þessar mundir vísa honum á næstu skref inn í hamingjuna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

,,Messi reyndi að fá mig til Barcelona“

,,Messi reyndi að fá mig til Barcelona“
Fókus
Fyrir 6 klukkutímum

Áramótaspá Ellýjar Ármanns: „Hann á eftir að gera meira, hann er bara rétt að byrja“

Áramótaspá Ellýjar Ármanns: „Hann á eftir að gera meira, hann er bara rétt að byrja“
Fókus
Í gær

Lögreglan hafði ítrekað verið kölluð að heimili leikstjórans fyrir morðin

Lögreglan hafði ítrekað verið kölluð að heimili leikstjórans fyrir morðin
Pressan
Í gær

Fundu leynda grafhvelfingu musterisriddara í Póllandi þar sem hið heilaga gral gæti leynst

Fundu leynda grafhvelfingu musterisriddara í Póllandi þar sem hið heilaga gral gæti leynst
Pressan
Í gær

Stórbruni á sveitabýli í Þýskalandi – Fjölskyldan var að borða jólamáltíðina

Stórbruni á sveitabýli í Þýskalandi – Fjölskyldan var að borða jólamáltíðina
Pressan
Í gær

Russell Brand bregst við nýjum ásökunum um kynferðisofbeldi í myndbandi

Russell Brand bregst við nýjum ásökunum um kynferðisofbeldi í myndbandi

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.