fbpx
Þriðjudagur 28.október 2025

Lesið í tarot Baltasars: Villtur og óábyrgur í leit að nýjum ævintýrum

Ritstjórn Bleikt
Sunnudaginn 28. júlí 2019 21:30

Baltasar Kormákur.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikstjórinn Baltasar Kormákur hefur átt einstaklega góðu gengi að fagna síðustu ár og hefur náð frábærum árangri á erlendri grundu í leikstjórastólnum. Baltasar sagði sig nýverið frá stórmyndinni Deeper sem verður líklega aldrei af, en þá skapast enn fremur rými fyrir Baltasar til að kanna nýjar lendur í glysheimum. Því fannst okkur forvitnilegt að leggja fyrir hann tarotspil og sjá hvað framtíðin ber í skauti sér. Þeir sem hafa áhuga á tarotspilum geta síðan dregið sín eigin á vef DV.

Yfirstígur hindranir

Fyrsta spilið er einstaklega lýsandi fyrir þá tíma sem eru nú í fortíðinni en það er spilið 7 sverð. Það merkir öflugar hindranir sem þó er hægt að yfirstíga vegna mikilla vitsmuna Baltasars. Framhaldið verður sniðið að þörfum leikstjórans ef hann leggur sig fram við að skapa sína eigin framtíð. Nú þarf Baltasar að standa fast á sínu og ekki taka hvaða verkefni sem gefst.

Leiðist

Næsta spil táknar persónuleika leikstjórans en það er spilið Myntgosi. Baltasar er svo vinnusamur, skipulagður, duglegur og metnaðarfullur og þrífst best þegar hann stefnir hátt – líkt og hann hefur gert síðustu ár, ef ekki áratugi. Baltasar leiðist um þessar mundir þar sem ekkert spennandi hefur rekið á fjörur hans en hann má alls ekki missa móðinn. Tímabilið núna er líkt og próf þar til næsti kafli hefst. Það er verið að þjálfa Baltasar í takast á við mótlæti og verður næsta skref hans gjöfult ef hann getur verið þolinmóður.

Flytur til útlanda

Næstur er Stafariddarinn sem túlkar hið óheflaða sjálf Baltasars. Hann er villtur og óábyrgur stundum og leitar uppi ævintýri. Á hinn bóginn er hann hlýr, gjafmildur, skemmtilegur og vinmargur. Í spilinu birtist einnig teikn um flutninga til útlanda og mikið ævintýri framundan þar sem fegurðin er fólgin í smáatriðunum. Baltasar þarf að leggja á sig mikið líkamlegt erfiði til að komast á spennandi stað og þarf að gera það með hraði. Hér gæti verið nýtt hlutverk þar sem Baltasar fær ekki aðeins að leikstýra heldur einnig að láta leiklistarhæfileika sína skína fyrir framan myndavélina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

„Virðist það vera samþykkt að hinu opinbera heilbrigðiskerfi megi einfaldlega blæða út“

„Virðist það vera samþykkt að hinu opinbera heilbrigðiskerfi megi einfaldlega blæða út“
Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Segir að Belgía sé nánast orðið fíkniefnaríki

Segir að Belgía sé nánast orðið fíkniefnaríki
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Ofbeldisverk á Benzincafe – Hlaut stjörnulaga skurði á höfði

Ofbeldisverk á Benzincafe – Hlaut stjörnulaga skurði á höfði
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Valdi hóp fyrir undankeppni EM

Valdi hóp fyrir undankeppni EM
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Valur staðfestir að Túfa sé hættur sem þjálfari liðsins – Haukur Páll og Kjartan hætta einnig

Valur staðfestir að Túfa sé hættur sem þjálfari liðsins – Haukur Páll og Kjartan hætta einnig
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Gunnar Smári líkir stjórn Sósíalista við kynferðisbrotamenn – „Þetta var líkara nauðgun ofbeldismanna“

Gunnar Smári líkir stjórn Sósíalista við kynferðisbrotamenn – „Þetta var líkara nauðgun ofbeldismanna“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.