Athafnakonan og fegurðardrottningin Tanja Ýr er með rúmlega 32 þúsund fylgjendur á Instagram. Hún deildi því með fylgjendum sínum hvernig hún vaxar sig undir höndunum, en hún gerir það alltaf sjálf að eigin sögn.
„Þar sem ég er að fara út á morgun þá er ég að fara að vaxa undir hendurnar og svona og ég geri það alltaf sjálf og ég nota þetta vax sem ég kaupi í apóteki,“ segir Tanja Ýr í Instagram Story. Hún segist halda að vaxið fáist í flestum apótekum, en hún tekur fram að ekki um auglýsingu sé að ræða.
Til að byrja með hitar hún vaxið í örbylgjuofni í um 2-3 mínútur. Fyrsta skrefið er að setja baby powder undir hendurnar. Síðan setur hún vaxið í sömu átt og hárin liggja. Að lokum kippir hún vaxinu.