Fimmtuga ofurfyrirsætan Helena Christensen birtir ansi skemmtilegar myndir á Instagram þar sem hún sést sitja fyrir kviknakin innan um pappakassa. Er um að ræða nýtt verkefni sem lítur bráðlega dagsins ljós.
https://www.instagram.com/p/Bu2l2NdgiYk/
Myndirnar koma í kjölfar fregna um að kryddpían Victoria Beckham sé ekki parsátt við að eiginmaður sinn, David Beckham, og fyrrnefnd Helena séu orðnir nánir vinir.
Helena og David tóku sjálfu af sér saman í desember á viðburði og hafa myndað góð og sterk vináttubönd upp á síðkastið ef marka má breska fjölmiðla.
https://www.instagram.com/p/Broba7jhdTB/
Heimildarmaður The Sun segir að Victoria sé heldur ekki sátt við að David hafi djammað með fyrirsætunni Bellu Hadid, sem er 22ja ára, í einkasamkvæmi í Miami nýverið.
„Victoria er oft stressuð þegar að David vingast við kvenkyns stjörnur. Það er auðvitað einhver afbrýðisemi þar sem hún vildi eyða meiri tíma með honum. David og Helena náðu strax vel saman og hafa haldið sambandi,“ segir heimildarmaðurinn.