Hertogaynjan og hertoginn af Sussex, Meghan Markle og Harry, mættu til Marokkó í gær í síðustu opinberu heimsóknina sína saman áður en frumburður þeirra kemur í heiminn í apríl.
Það má með sanni segja að Meghan og Harry hafi verið afar innileg hvar sem þau hafa komið í Marokkó og skín hamingjan úr augum þeirra beggja svo tekið er eftir.
Hjónin snúa aftur heim til Englands á morgun en hafa nýtt tímann í Marokkó vel. Þau hafa spjallað við almúgann og gefið sér tíma til að rækta samband sitt. Þá fékk Meghan sér sértakt henna tattú til að fagna þessum síðustu sjö mánuðum meðgöngunnar.