fbpx
Laugardagur 01.nóvember 2025

Kylie Jenner niðurbrotin vegna framhjáhalds Tristan: Hélt fram hjá með fjölskylduvin

Ritstjórn Bleikt
Miðvikudaginn 20. febrúar 2019 09:04

Khloe Kardashian, Tristan Thompson og Jordyn Woods.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Khloe Kardashian og Tristan Thompson eru hætt saman. Þau eiga eina dóttur saman, True Thompson, sem er tíu mánaða gömul. Ástæðan fyrir sambandslitunum ættu ekki að koma neinum á óvart, en Tristan var ótrúr Khloe. Hann hefur áður haldið fram hjá henni.

Sjá einnig: Framhjáhald skekur Kardashian-fjölskylduna – Tristan hótað lífláti og sagður hataðasti maður Bandaríkjanna

E! News staðfestir fréttirnar að stjörnuparið hefur slitið sambandi sínu. En stærstu fréttirnar eru ekki að Tristan hafi haldið fram hjá Khloe, heldur með hverri.

Samkvæmt Hollywood Unlocked hætti parið saman eftir að Khloe komst að því að Tristan og Jordyn Woods hafi sofið saman. Jordyn Woods er þekkt fyrir að vera besta vinkona Kylie Jenner og hefur lengi verið Kardashian-Jenner fjölskylduvinur.

Framhjáhaldið á að hafa átt sér stað síðustu helgi. Tristan og Jordyn, sem er 21 árs, hittust í partíi heima hjá honum í Los Angeles. Samkvæmt heimildarmönnum sem voru á staðnum voru þau mjög ástúðleg í garð hvors annars. Jordyn sat í kjöltu hans og var heima hjá honum til sjö um morguninn.

https://www.instagram.com/p/BuFEdkHhPBT/?utm_source=ig_embed

Khloe Kardashian og tvær bestu vinkonur hennar Malika og Larsa Pippen skrifuðu undir Instagram færsluna.

Kylie og Jordyn hafa verið bestu vinkonur í yfir áratug. Þær búa saman og gera nánast allt saman. Samkvæmt E! News er Kylie niðurbrotin yfir fréttunum. Heimildir E! News herma að öll fjölskyldan segir skilið við Jordyn, en það verði erfiðast fyrir Kylie en hún „var í afneitun í nokkra daga.“

Tristan sagði í færslu á Twitter að þetta væru „falskar fréttir,“ en hefur síðan þá eytt færslunni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Lögreglumaður á vakt í Eyjum skipti sér af ágreiningi sem var ekki lögreglumál – Persónulega tengdur öðrum aðilanum

Lögreglumaður á vakt í Eyjum skipti sér af ágreiningi sem var ekki lögreglumál – Persónulega tengdur öðrum aðilanum
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Auðmjúka stjarnan á Íslandi – „Er bara eins og gaur út sveitinni“

Auðmjúka stjarnan á Íslandi – „Er bara eins og gaur út sveitinni“
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Gjaldþrota en þarf samt að borga námslánið

Gjaldþrota en þarf samt að borga námslánið
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Kemur í ljós á þriðjudag hvaða liðum Ísland mætir í undankeppni HM

Kemur í ljós á þriðjudag hvaða liðum Ísland mætir í undankeppni HM
Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Ein helsta stuðningskona Trump á þingi sökuð um að vera vinstrisinnuð

Ein helsta stuðningskona Trump á þingi sökuð um að vera vinstrisinnuð
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Hafnarfjarðarmálið: Meintur gerandi hringdi stöðugt í móðurina í aðdraganda húsbrotsins – Sláandi lýsingar á ofbeldi gegn drengnum

Hafnarfjarðarmálið: Meintur gerandi hringdi stöðugt í móðurina í aðdraganda húsbrotsins – Sláandi lýsingar á ofbeldi gegn drengnum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.