Það hafa líklega allir lent í því að stífla klósettið á heimilinu, nú eða heima hjá öðrum sem getur orðið frekar vandræðalegt. Hvað sem því líður, þá geta aðstæður verið þannig að þú þarft að losa stífluna en átt ekki drullusokk í verkið.
Það er því gott að HuffPost fann lausn á því hvernig hægt er að losa stífluna ef drullusokkur er ekki nálægt. Vert er að taka fram að þessi aðferð virkar ekki ef byrjað er að flæða upp úr klósettinu.
- Dragðu djúpt andann (eða slepptu því, það fer eftir því hversu slæm lykt er inni á baðherberginu).
- Helltu ágætu magni af uppþvottalegi eða sjampói ofan í klósettið.
- Bættu við um þremur lítrum af mjög heitu vatni (það má þó ekki vera sjóðandi).
- Bíddu í smá stund og horfðu á töfrana. Vatnið ætti að tæta klósettpappírinn í sundur og sápan á að hjálpa því að renna niður lagnirnar.
- Þú gætir þurft að endurtaka skref 2 og 3 aftur ef ekkert gerist.
- Í versta falli, taktu í sundur vírherðatré og ýttu stíflunni varlega niður í lagnirnar.
Gangi þér vel! (Mundu svo að kaupa drullusokk í næstu búðarferð).