Birna Eik Benediktsdóttir lenti í hræðilegri lífsreynslu þegar sonur hennar höfuðkúpubrotnaði einungis tveggja og hálfs árs gamall vegna þess að hann fékk að vera hjálmlaus á sparkhjóli í leikskólanum.
„Svona getur gerst þegar börnin okkar eru hjálmlaus á sparkhjólum í leikskólanum. Sonur minn höfuðkúpubrotnaði þegar hann var tveggja og hálfs árs gamall. Eftir það krafðist ég þess að hann yrði með hjálm á leikskólanum. Öryggisfulltrúar banna oft hjálma á leiksvæðum vegna hengingarhættu ef að börnin fara að klifra og leika sér með hjálmana. En það er hægt að fá hjálma með öryggissmellum sem losna ef það hangir eitthvað í þeim svo þetta ætti ekki að þurfa að vera neitt mál,“ segir Birna í samtali við Bleikt.
Birna segir að fólk ætti ekki að þurfa að taka neina sénsa með höfuð barnanna sinna og hvetur fólk til þess að krefjast þess að börnin noti alltaf hjálma í leikskólanum.
„Mér finnst það líka bara borðleggjandi að ef ekki er hægt að bjóða upp á viðeigandi öryggisbúnað að þá á bara ekki að bjóða upp á þessar aðstæður. Þá eiga börn bara að fá að hjóla með foreldrum sínum, ekki á leikskólanum. Endilega verið frek og gerið þessa kröfu á ykkar leikskóla, höfuðkúpubrot er ekkert grín.“