Svefnstellingin þín getur sagt ýmisleg um þig, þar á meðal aldur þinn, menntun og starf. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar sem framkvæmd af Loughborough University Clinical Sleep Research Unit. Fimmtán þúsund einstaklingar alls staðar að úr heiminum tóku þátt í rannsókninni. Rannsakendur fylgdust með og greindu svefnvenjur þátttakenda. Hér fyrir neðan má sjá helstu niðurstöður.
Sofa á vinstri hlið
Fólk sem sefur venjulega á vinstri hlið líkamans er líklegra til að hafa gráðu og eru líklegri til að vinna í markaðssetningu eða auglýsingastarfsemi. Þetta er algengasta svefnstellingin.
Sofa á hægri hlið
Að sofa á hægri hlið er næst vinsælasta svefnstellingin. Fólk sem sefur á hægri hlið er líklegra til að vinna í samgöngum eða í iðnframleiðslu. Fólkið er einnig líklegra til að reykja mikið. Rannsóknin heldur því einnig fram að fólk sem sefur á hægri hlið er líklegast til að vera á aldrinum 35 til 44 ára.
Sofa á maganum
Manneskja sem sefur á maganum er sjaldgæf sjón, en aðeins 12 prósent þátttakenda sofa á þennan hátt. Rannsóknin heldur því fram að fólk sem sefur á maganum er líklegast til að vinna í landbúnaði eða fiskiðnaði. Þau neyta að meðal tali sjö til tíu eininga af áfengi á hverjum degi samkvæmt niðurstöðunum.
Skipta um stellingar
Einn af hverjum tíu manns einskorðast ekki við neinn af þessum flokkum hér að ofan. Sumir skipta um stellingar yfir nóttina. Samkvæmt rannsókninni þá eru þessir einstaklingar líklegastir til að vera kvenmenn og starfa hjá almenningsþjónustufyrirtæki.