fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024

Vegan bláberja og quinoa hafraklattar að hætti Amöndu Cortes

Öskubuska
Fimmtudaginn 26. júlí 2018 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðal uppistaðan eru bláber, hafrar og quinoa. Quinoa er ein af mínum uppáhalds korntegundum því það er próteinríkt (miðað við mörg önnur korn), næringarríkt og fljótlegt í suðu. Ég sýð 1 bolla af quinoa á móti 2 bollum af vatni og tekur það um það bil 10 mínútur frá suðu að verða tilbúið. Mér finnst þessir klattar virkilega góð tilbreyting frá þeim hefðbundnu og er tilvalið að nýta bláberjatíðina og smella ferskum berjum í uppskriftina.

Hráefni

– 1,5 bolli hafrar

– 1 bolli soðið quinoa (ég sýð 1 bolla af quinoa í 2 bollum af vatni)

– 1 tsk lyftiduft

– 1/3 bolli kókospálmasykur (má breyta í hrásykur)

– 1 bolli stappaðir bananar (ca 2 miðlungs)

– 2 hör “egg”

(1 höregg = 1 mtsk mulin hörfræ + 2 mtsk vatn)

– 2 mtsk hnetusmjör

– 2 mtsk sítrónu safi

– 1 tsk vanilla extrakt

– 1,5 bolli fersk eða frosin bláber

Aðferð

Ofninn er forhitaður í 175°C. Hrærið saman mulin hörfræ og vatn, leyfið því að standa í 5 mín svo að blandan þykkni og virki sem bindiefni.

Þurrefnin eru hrærð saman (hafrar, quinoa, sykur og lyftiduft). Banana, hnetusmjöri, hör eggjum, sítrónusafa og vanillu er blandað saman í matvinnsluvél eða hrærivél. Blautefnunum er þá blandað við þurrefnin.

Bláberjum er loks blandað varlega saman við degið og það bakað í 30mín. Leyfið bökunni að kólna áður en skorið er í klatta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Unglingurinn skoraði sjö mörk fyrir Arsenal

Unglingurinn skoraði sjö mörk fyrir Arsenal
Fókus
Fyrir 10 klukkutímum

Margir upplifa kynferðislega örvun af kitli

Margir upplifa kynferðislega örvun af kitli
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Gregg eftir tapið gegn Blikum: ,,Ég held að ég hafi ekki fengið gult spjald, er það?“

Gregg eftir tapið gegn Blikum: ,,Ég held að ég hafi ekki fengið gult spjald, er það?“
Fókus
Fyrir 12 klukkutímum

Stimplaði sig inn klukkan 9: Yfirmaðurinn allt annað en sáttur – Hvor hefur rétt fyrir sér?

Stimplaði sig inn klukkan 9: Yfirmaðurinn allt annað en sáttur – Hvor hefur rétt fyrir sér?
Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

Fjólublá baktería gæti verið lykillinn að því að finna líf á fjarplánetum

Fjólublá baktería gæti verið lykillinn að því að finna líf á fjarplánetum
EyjanFastir pennar
Fyrir 14 klukkutímum

Björn Jón skrifar: Forsetaefni íhaldsmanna?

Björn Jón skrifar: Forsetaefni íhaldsmanna?
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Mistök hjá Liverpool? – Vill sjá fyrrum stjóra Chelsea við stjórnvölin

Mistök hjá Liverpool? – Vill sjá fyrrum stjóra Chelsea við stjórnvölin
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Einkunnir Tottenham og Arsenal – Havertz valinn bestur

Einkunnir Tottenham og Arsenal – Havertz valinn bestur

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.