fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024

Einlægt bréf Katrínar til móður sinnar: „Án þín væri ég ekki sú manneskja sem ég er í dag“

Vynir.is
Föstudaginn 29. júní 2018 17:00

mother and little daughter play at sunset sky

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Elsku mamma mín

Það er svo margt sem að þú hefur kennt mér í gegnum lífið.

Það er svo ótal margt sem að þú hefur sagt mér og leiðbeint mér í gegnum.

Þú hefur lyft mér upp þegar ég hélt að lífið væri svo þungt að ég gæti aldrei aftur staðið upp.

Þú hefur aldrei dæmt mig fyrir neitt sem að ég hef gert eða sagt, heldur mætt mér með skilning. Leiðbeint mér í gegnum hlutina frekar en að gagnrýna þá.

Fyrirgefðu 

Fyrirgefðu mamma, fyrir að hafa gert þér lífið leitt á mínum versta tíma í gegnum unglingsárin.

Fyrirgefðu mamma fyrir að hafa ekki hlustað á ráðleggingar þínar þegar ég þurfti mest á þeim að halda.

Fyrirgefðu mamma fyrir að hafa skellt hurðum á þig þegar þú varst einungis að reyna að kenna mér og leiðbeina mér.

Fyrirgefðu mamma að ég hafi ekki áttað mig á því þá hversu mikilvæg þú ert mér. Ég veit miklu betur í dag

Fyrirgefðu mamma fyrir að hafa ekki hjálpað þér meira á heimilinu þegar að þú þurftir á mér að halda.

Takk fyrir 

Takk fyrir mamma, fyrir að hafa endalausa þolinmæði í að ala mig upp.

Takk fyrir mamma að hjálpa mér að skilja lífið betur.

Takk fyrir mamma að hugsa um mig þegar ég átti erfitt með það sjálf.

Takk fyrir mamma að hlusta á mig þegar að enginn annar var til staðar.

Takk fyrir mamma, fyrir að leyfa mér að vinna úr hlutunum sjálf en á sama tíma leiðbeina mér.

Takk fyrir mamma að vera til staðar fyrir mig enn þann dag í dag.

Takk fyrir að trúa alltaf á mig og styðja mig í mínum ákvörðunum í lífinu.

Takk fyrir mamma að kenna mér það sem ég kann í dag, og að gefa mér það sem ég get gefið dóttur minni áfram.

Án þín væri ég ekki sú manneskja sem ég er í dag.

Þegar ég varð mamma sjálf, áttaði ég mig á því að mamma hafði í rauninni alltaf rétt fyrir sér…. Og hefur reyndar ennþá í dag alltaf rétt fyrir sér.

Ég er svo þakklát fyrir að eiga þig mamma mín alla daga.

Færslan er skrifuð af Katrínu Helgu og birtist upphaflega á Vynir.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 klukkutímum

Velta fyrir sér tekjum Gústa B eftir að hann pungaði út milljónum í sumargjöf

Velta fyrir sér tekjum Gústa B eftir að hann pungaði út milljónum í sumargjöf
433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Hörður lýsir ótrúlegum vendingum – „Ég bjóst ekki við þessu þegar ég vaknaði“

Hörður lýsir ótrúlegum vendingum – „Ég bjóst ekki við þessu þegar ég vaknaði“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Er þetta sterk vísbending um að hann verði sá fyrsti sem Slot fær til Liverpool?

Er þetta sterk vísbending um að hann verði sá fyrsti sem Slot fær til Liverpool?
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Aðdáendur hafa áhyggjur af Justin Bieber – Birti myndir af sér grátandi

Aðdáendur hafa áhyggjur af Justin Bieber – Birti myndir af sér grátandi
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Að öllu óbreyttu verður þetta endanlegur fjöldi forsetaframbjóðenda

Að öllu óbreyttu verður þetta endanlegur fjöldi forsetaframbjóðenda
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Kveiks-fíaskóið vandræðalegt fyrir RÚV í ljósi tengsla útvarpsstjóra

Kveiks-fíaskóið vandræðalegt fyrir RÚV í ljósi tengsla útvarpsstjóra
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Hannes ræðir förina í brúðkaup Gylfa Þórs og allt fjaðrafokið í kjölfarið – „Þess vegna fannst mér svo brotið á minni réttlætiskennd“

Hannes ræðir förina í brúðkaup Gylfa Þórs og allt fjaðrafokið í kjölfarið – „Þess vegna fannst mér svo brotið á minni réttlætiskennd“
Fókus
Fyrir 7 klukkutímum

Vikan á Instagram – „Maður fer all inn á brókinni fyrir vinkonu sína“

Vikan á Instagram – „Maður fer all inn á brókinni fyrir vinkonu sína“