fbpx
Föstudagur 19.desember 2025

Aníta Arndal segist fá óviðeigandi spurningar um dætur sínar frá ókunnugum: „Hvaða svari er fólk að leitast eftir?“

Aníta Estíva Harðardóttir
Fimmtudaginn 8. mars 2018 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aníta Arndal á tvær ungar dætur sem henni þykir gaman að monta sig af. Oftar en ekki verður fólk hissa á því að svona ung stúlka eigi tvö börn en það sem Anítu þykir þó virkilega sorglegt er að iðulega spyr fólk hana að því hvort hún eigi þær báðar með sama manninum með undrandi svip.

Eldri dóttir mín verður 4 ára í ágúst og sú yngri 2 ára í mars. Fólk er hissa yfir því að ég eigi tvö börn svona ung og fer svo í sjokk þegar ég segist eiga þær báðar með sama manninum og fara þá að hrósa mér fyrir það,

segir Aníta í einlægum pistli sínum á bloggsíðu sinni.

Vel gert hvað? Hvað kemur það ykkur við hvort ég eigi börnin mín með sama manninum? Væru börnin mín eitthvað verri ef þau ættu ekki sama pabbann? Væru þau ekki jafn mikilvæg eða jafn sæt? Eða væri ég eitthvað verri?

Aníta tekur fram að konur sem eiga börn með fleiri en einum manni séu ekki verri en aðrar konur.

En það er þannig sem ég les það þegar fólk spyr mig að þessari spurningu. Hvað ef ég hefði sagt nei, að þær ættu reyndar ekki sama pabbann. Væri það ekki eins mikið sjokk fyrir fólk. Eða hvaða svari er fólk að leitast eftir? Af hverju spyr það þessarar spurningar?

Aníta segir að í kjölfarið fái hún oft spurninguna hvort þau séu enn saman.

Eflaust eru þetta bara forvitni en mér þykir þetta á svo gráu svæði og ég veit það eru aðrar mæður sem eru sammála mér. Mér finnst mikilvægt að fólk vandi sig í samræðum og hugsi áður en það tali.

Hægt er að fylgjast með Anítu á eftirfarandi miðlum:

Snapchat: trendneglur

Instagram: anitaarndal og nailsbyarndal

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Móðir glímir við varanlegan skaða eftir mistök í fæðingu á Landspítalanum

Móðir glímir við varanlegan skaða eftir mistök í fæðingu á Landspítalanum
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Þessi ummæli Georginu um Ronaldo vekja athygli – „Minnsta sem hann gat boðið“

Þessi ummæli Georginu um Ronaldo vekja athygli – „Minnsta sem hann gat boðið“
Pressan
Fyrir 15 klukkutímum

3ja ára sonur íþróttafréttakonu kom einn til dyra þegar afi rak inn nefið – Inni á heimilinu beið þeirra versta martröð

3ja ára sonur íþróttafréttakonu kom einn til dyra þegar afi rak inn nefið – Inni á heimilinu beið þeirra versta martröð
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Barcelona skoðar tvo miðverði til að reyna að bæta uppspil sitt

Barcelona skoðar tvo miðverði til að reyna að bæta uppspil sitt
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Gerir ekki ráð fyrir öðru en Guehi fari frítt næsta sumar

Gerir ekki ráð fyrir öðru en Guehi fari frítt næsta sumar
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Vilhjálmur svaraði Samfylkingunni fullum hálsi: Ekki hægt að tala um að „planið sé að virka“

Vilhjálmur svaraði Samfylkingunni fullum hálsi: Ekki hægt að tala um að „planið sé að virka“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.