fbpx
Þriðjudagur 23.desember 2025

Eva Björk gerir fallega ábreiðu af laginu „Lover, Please Stay“ – Myndband

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Sunnudaginn 23. júlí 2017 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eva Björk er söngkona og lagahöfundur. Hún hefur sungið og samið tónlist frá unga aldri og gaf út sitt fyrsta lag 17 ára. Boltinn fór fyrst að rúlla hjá henni þegar hún byrjaði í kór Lindakirkju hjá Óskari Einars árið 2011. Síðan þá hefur hún fengið mörg tækifæri til að vinna með frábærum listamönnum.

Eva hefur tekið að sér alls konar bakraddaverkefni eins og undankeppni Eurovision. Hún hefur einnig sungið bakraddir fyrir Kaleo, Glowie, Sylvíu, Kítón og Frostrósir. Hún tók þátt í tónleikauppsetningu Jesus Christ Superstar, bæði sem kórmeðlimur en einnig sem hluti af hópnum „Soul Girls.“

Árið 2013 stofnaði Eva Björk ásamt Rögnu Björg og Hrefnu Hrund sönghópinn Harmony. Þær hafa síðan þá haldið fjóra jólatónleika og komið fram við hin ýmsu tilefni. Á jólatónleikum Heru Bjarkar 2015 sáu þær um bakraddir en komu einnig fram sem gestasöngvarar. Harmony breyttist svo í Harmoníu þegar fjórir söngvarar bættust við hópinn jólin 2016.

Í fyrra sumar ákvað Eva að dusta rykið af píanóinu sínu og hefur æft sig að syngja og spila hvern einasta dag síðan. Hún gerði fallega ábreiðu af laginu „Lover, Please Stay“ eftir hljómsveitina Nothing But Thieves.

Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Fyrirhugað að Gufunesmálið fari fyrir Landsrétt í febrúar

Fyrirhugað að Gufunesmálið fari fyrir Landsrétt í febrúar
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Vilja stela Johnson fyrir framan nefið á Palace

Vilja stela Johnson fyrir framan nefið á Palace
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Arnaldur pikkfastur á toppnum hjá Nettó

Arnaldur pikkfastur á toppnum hjá Nettó
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Vilhjálmur: „Þetta er „jólagjöfin“ sem verðtryggð heimili fá þessi jólin“

Vilhjálmur: „Þetta er „jólagjöfin“ sem verðtryggð heimili fá þessi jólin“
Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

OnlyFans-stjarna afhjúpar dýrar gjafir sem karlar gefa henni í jólagjöf – Segir klámleikara brenna fljótt út í starfi

OnlyFans-stjarna afhjúpar dýrar gjafir sem karlar gefa henni í jólagjöf – Segir klámleikara brenna fljótt út í starfi
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Vonskuveður um jólin – Þetta þurfa landsmenn að vita

Vonskuveður um jólin – Þetta þurfa landsmenn að vita
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum
Salah hetja Egyptalands

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.