fbpx
Þriðjudagur 04.nóvember 2025

Knúz.is gagnrýnir verkefni Þórunnar Antoníu: „Hvers konar samfélag er það þegar konur neyðast til að líma yfir glösin sín til að forðast byrlun og nauðgun?“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Mánudaginn 15. maí 2017 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knúz.is gagnrýnir verkefni Þórunnar Antoníu um að útbúa sérstaka límmiða sem límdir eru ofan á glös og koma í veg fyrir að hægt sé að lauma nauðgunarlyfi ofan í þau.

„Hugmyndin kviknaði út frá sorg og vanmáttarkennd stúlku sem er mér afar kær og var byrlað lyf á skemmtistað og nauðgað,“

sagði Þórunn Antonía í samtali við Fréttablaðið. Sama dag og Þórunn Antonía heyrði af máli konunnar tók hún við störfum sem kynningarstjóri Secret Solstice. Þegar hún var á leið á fund með auglýsingastofu ásamt teyminu sínu fékk hún hugmynd að láta búa til filmu eða miða sem fólk getur sett yfir drykkinn sinn.

„Við ættum auðvitað ekkert að þurfa að vera að pæla í svona löguðu, það er í raun fáránlegt. En staðreyndin er sú að það er fólk sem er að gera þetta af ásettu ráði sem er enn þá fáránlegra og flestum algjörlega óskiljanlegt,“

sagði Þórunn Antonía. Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands er verndari verkefnisins og tekur þátt í að vekja athygli á því. Verkefnið hefur fengið misjöfn viðbrögð. Jákvæð viðbrögð á þann hátt að þetta sé flott átak gegn kynferðisofbeldi og vekur öryggiskennd, og neikvæð viðbrögð á þann hátt að þarna sé verið að setja það í hendur kvenna að sjá til þess að þeim verði ekki nauðgað. Maður hugsar til þeirra athugasemda sem margar konur og stúlkur hafa fengið að heyra í gegnum ævina. Til að forðast nauðgun á maður ekki að fara út í of stuttu pilsi, maður á að vera í þröngum hjólabuxum undir kjólnum (helst tvennum), ekki drekka of mikið og ekki vera með of mikla brjóstaskoru. Eru límmiðarnir átak gegn kynferðisofbeldi eða hluti af þeirri ósanngjörnu ábyrgð sem er varpað á konur svo þeim verði ekki nauðgað?

Knúz.is var ekki hrifið af verkefninu og gagnrýndi það á Facebook síðu sinni: „Er þetta vænlegt til árangurs? Hvers konar samfélag er það þegar konur neyðast til að líma yfir glösin sín til að forðast byrlun og nauðgun?“

Hvað finnst þér um límmiðana?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Albert telur að verið sé að aumingjavæða unga íslenska drengi og tekur dæmi

Albert telur að verið sé að aumingjavæða unga íslenska drengi og tekur dæmi
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Norðmaður sakaður um kynþáttaníð eftir að hafa sett út á andremmu andstæðings

Norðmaður sakaður um kynþáttaníð eftir að hafa sett út á andremmu andstæðings
Fókus
Fyrir 9 klukkutímum

Ásdís mætti í goðsagnakennda hrekkjavökupartý Heidi Klum

Ásdís mætti í goðsagnakennda hrekkjavökupartý Heidi Klum
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Fimm handteknir eftir að hundruð milljóna voru sviknar úr Landsbankanum

Fimm handteknir eftir að hundruð milljóna voru sviknar úr Landsbankanum
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin – Arsenal pakkar deildinni saman og United gæti náð Meistaradeildarsæti

Ofurtölvan stokkar spilin – Arsenal pakkar deildinni saman og United gæti náð Meistaradeildarsæti
Fókus
Fyrir 11 klukkutímum

Hanna Rún bjó til blómasúlu úr gömlum Mackintosh-kössum

Hanna Rún bjó til blómasúlu úr gömlum Mackintosh-kössum
Eyjan
Fyrir 12 klukkutímum

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Undirhundur

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Undirhundur
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

„Þetta endar oft þannig að þegar barnið er orðið fullorðið þá er foreldrið orðið öryrki“

„Þetta endar oft þannig að þegar barnið er orðið fullorðið þá er foreldrið orðið öryrki“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.