fbpx
Miðvikudagur 12.nóvember 2025

DIY – Filmuð marmaranáttborð – Einfalt og ódýrt!

Ritstjórn Bleikt
Þriðjudaginn 18. apríl 2017 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hvað hefur maður ekki oft labbað í gegnum Ikea og keypt eitthvað allt annað en átti að kaupa? Ég veit að það eru mjög margir að tengja!

Í einni Ikea heimsókn minni fyrir ekki svo löngu þá keypti ég “alveg óvart” tvær litlar kommóður sem ég var búin að gera upp í huganum áður en ég var komin í gegnum alla búðina.

Kullen náttborðið fyrir breytingu

Okkur skötuhjúin vantaði náttborð við hjónarúmið í svefnherberginu en vissum ekki alveg hvernig náttborð okkur langaði í og vildum eiginlega ekki kaupa einhver dýr náttborð þar sem við erum enn að dytta að heimilinu okkar sem við keyptum fyrir ári síðan.

Þegar ég sá þessar fáránlega ódýru kommóður í Ikea þá vissi ég strax hvað mig langaði að gera við þær. Ég átti nefnilega til afgang af marmara filmu sem ég hafði keypt í Bauhaus þegar ég fékk gefins skrifborð sem ég gerði að marmara snyrtiborði og er inni í herberginu okkar.

Ég hugsaði allavega með mér að ef þetta yrði ljótt þá myndi ég bara breyta því aftur. Enda kostuðu náttborðin aðeins 1.590kr. stykkið. Já þið lásuð rétt, 1.590kr!!!!

 

Eina sem þarf í svona einfalt filmu verkefni er:

Fituhreinsir (ég notaði edik & vatn) – Flöturinn sem á að filma þarf að vera alveg hreinn og laus við alla fitu.
Filma – ég keypti þær í Bauhaus og kostar rúllan undir 2.000kr.
Veggfóðurspaði (ekki nauðsynlegt en kostur) – gott til þess að losa allt loft undan filmunni og slétta flötinn sem verið er að filma.
Dúkahnífur – til þess að skera filmuna. Nauðsynlegt að hafa hnífinn beittan.
Þolinmæði – allavega dass af henni.
Tónlist – bara til þess að gera meiri stemmningu á meðan.
Rauðvínsglas – fyrir þá sem hafa aldur til er þetta “the cherry on the top”.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Gunnar kallar eftir breytingum í samstarfi skóla og íþrótta á Íslandi – „Ég er að tala um ef Kalli brókar þrjá inni á baði, auðvitað á það ekki að fá viðgangast“

Gunnar kallar eftir breytingum í samstarfi skóla og íþrótta á Íslandi – „Ég er að tala um ef Kalli brókar þrjá inni á baði, auðvitað á það ekki að fá viðgangast“
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Eiður Aron fylgir Davíði Smára í Njarðvík

Eiður Aron fylgir Davíði Smára í Njarðvík

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.