fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Ugla og Fox eru kynsegin par – „Giftu“ sig til að mótmæla hjúskaparlögum

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 21. mars 2017 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ugla Stefanía Jónsdóttir og Fox Fisher eru bæði kynsegin og hafa verið saman í rúmlega ár. Þau eru um þessar mundir að taka þátt í gerð heimildarmyndar sem fjallar um möguleikann fyrir kynsegin fólk að gifta sig án þess að þurfa að skrá sig sem konu eða karl. Gay Iceland greinir frá þessu.

Kynsegin fólk er fólk sem vill hvorki flokka sig sem eingöngu karl eða konu. Orðið er í raun regnhlífarhugtak yfir fólk sem skilgreinir kynvitund sína sem hvorugt, bæði eða fljótandi á milli.

Mynd/Gay Iceland

Myndin er gerð í Bretlandi og ber titillinn „Owl and Fox can‘t get married.“ Hún er fjármögnuð á GoFundMe og getur hver sem er styrkt gerð myndarinnar. Hópur af konum vinnur að gerð myndarinnar, þær stunda nám í kvikmyndagerð í Southampton Solent University og er myndin lokaverkefnið þeirra. Tökur eru þegar byrjaðar og hafa þær fylgst með Uglu og Fox síðustu þrjár vikur.

Bæði Ugla og Fox eru kynsegin og vilja skapa umræðu um fordómana sem kynsegin fólk finnur fyrir þegar kemur að hjúskaparlögum.

Við höfum farið til yfirvalda að spyrja spurninga, tala við aðra kynsegin einstaklinga, foreldra okkar og í gær enduðum við með að mótmæla hjúskaparlögum með því að „giftast“ í Brighton,

segir Ugla við Gay Iceland. Hún bætir við að brúðkaupið hafi einungis verið táknrænt, en ekki bindandi. Tilgangur brúðkaupsins og heimildarmyndarinnar er að auka vitund um þessi málefni og benda á að kynsegin fólk hafi enga skilgreiningu á kyngervi sínu samkvæmt lögum. Maður verður að skrá sig sem annað hvort karl eða konu, það eru engir aðrir valmöguleikar í Bretlandi og á Íslandi.

Mynd/Gay Iceland

Það eru nokkur lönd sem hafa gert það löglegt að skrá sig sem önnur kyn en karlkyn og kvenkyn og er Ugla bjartsýn að Ísland fylgi í fótspor þeirra landa í framtíðinni.

Lestu viðtalið við Uglu í heild sinni á Gay Iceland.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Ástrós og Adam selja í Fossvogi

Ástrós og Adam selja í Fossvogi
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Tóku Jóa Kalla og Hafnfirðinga til bæna vegna uppákomunnar á föstudag: „Hann gat ekki sætt sig við að Fylkismenn myndu ekki láta hann bully-a sig“

Tóku Jóa Kalla og Hafnfirðinga til bæna vegna uppákomunnar á föstudag: „Hann gat ekki sætt sig við að Fylkismenn myndu ekki láta hann bully-a sig“
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Kelly Osbourne lætur nettröllin sem hæðast að útliti hennar heyra það – „Sparka í mig liggjandi“

Kelly Osbourne lætur nettröllin sem hæðast að útliti hennar heyra það – „Sparka í mig liggjandi“
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Sinners og The Studio sigurvegarar Actor Awards

Sinners og The Studio sigurvegarar Actor Awards
Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

Mikil ólga vegna ákvörðunar RÚV – Edda Björgvins vill fá svör

Mikil ólga vegna ákvörðunar RÚV – Edda Björgvins vill fá svör
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Margir minnast Davíðs – „Hann markaði djúp spor í íslenskt samfélag“

Margir minnast Davíðs – „Hann markaði djúp spor í íslenskt samfélag“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.