fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024

Partý í Hörpu: Sextugir undirheimastrákar á Sónar Reykjavík

Margrét Gústavsdóttir
Föstudaginn 16. mars 2018 17:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarhátíðin Sónar Reykjavík fer fram dagana 16. og 17. mars á fjórum sviðum í Hörpu. Alls verður boðið upp á tónleika rúmlega 50 hljómsveita og listamanna á hátíðinni.

Sónar tónlistarhátíðin hófst í Barcelona árið 1994 en nú, 25 árum síðar sækja rúmlega hundrað þúsund tónlistarunnendur hátíðina á hverju sumri. Hátíðin er orðin að alþjóðlegu fyrirbæri en árlega fara Sónar hátíðir einnig fram í Istanbúl, Hong Kong, Buenos Aires, Bogóta og síðast en ekki síst, – Reykjavík. Sónar fagnar 25 ára áfanganum með pomp og prakt og er fyrsti viðkomustaður hátíðarhaldanna í Reykjavík, á fyrstu Sónar-hátíð afmælisársins.

Ein af skrautfjöðrum hátíðarinnar í ár er breska hljómsveitin Underworld en hún er ein vinsælasta hljómsveit heims á sviði danstónlistar og hefur verið um árabil. Í tilkynningu frá hátíðinni segir að sveitin eigi sér fáar líkar þegar komi að sviðsframkomu og sjónarspili á tónleikum. Underworld á að baki fjölmargar verðlaunaplötur og smelli á borð við Push Upstairs, Dark & Long, 2 Months Off, I Exhale, Jumbo og Cowgirl.

Trylltu með Trainspotting

Aðkoma þeirra að hinni geysivinsælu kvikmynd Trainspotting, með Ewan McGregor í aðalhlutverki, hafði einnig sín áhrif á uppgang hljómsveitarinnar fyrir tæpum þremur áratugum en þar áttu þeir lagið Born Slippy sem óhætt er að segja að hafi staðið tímans tönn líkt og annað sem frá sveitinni kemur.

Gaman er að geta þess að sama ár og Sónar var fyrst hleypt af stokkunum, það er 1994, kom Underworld einnig fram á Debut-tónleikum Bjarkar í Laugardalshöllinni, þá lítt þekktir rafpopparar. Í Bretlandi á hljómsveitin nú orðið gríðarlega stóran aðdáendahóp enda nýtur hún virðingar þar í landi og hlotnaðist meðal annars sá heiður að koma fram á og leikstýra opnunarhátíð Ólympíuleikana í London árið 2012.

Fólki finnst Harpa geggjuð

Gyða Lóa Ólafsdóttir, fjölmiðlafulltrúi hátíðarinnar, er á sínu öðru starfsári með Sónar en hún segir afmælishátíðina leggjast einstaklega vel í hóp þeirra sem að henni standa.

„Það er svo gaman að fá að halda þessa hátíð í Hörpu enda húsið með eindæmum fallegt,“ segir Gyða glöð í bragði. Hún segir aðsókn erlendra gesta aldrei hafa verið meiri en í ár enda þykir íslenskt tónlistarlíf og tónlistarmenning nokkuð einstök.

„Fólki finnst Harpa alveg geggjuð og ótrúlega spennandi að upplifa tónlistarhátíð í þessu húsi. Hátíðargestum þykir stærð hússins líka mjög heppileg en hér er stutt að rölta á milli viðburða samanborið við margar sambærilegar hátíðir erlendis. Svo finnst erlendu gestunum auðvitað mjög tilkomumikið að vera hérna við sjóinn og horfa Esjuna.“

Sérstakur Sónar-gjaldmiðill til að stytta raðir

Gyða segist sérstaklega spennt fyrir því að kynna sérstakan token-gjaldmiðil á hátíðinni en slíkt er mjög algengt á stórum viðburðum erlendis og kemur í veg fyrir að langar raðir myndist þegar fólk er að kaupa sér veitingar.
„Með því að nota þessi token, sem eru eins konar litlir plastpeningar, sleppur fólk við umstang og bið. Það kaupir sér bara þessi token og notar yfir hátíðina en við verðum með sölustöðvar á fjórum stöðum í Hörpu.“

Áhugi og ást á tækniframförum hefur lengi loðað við þau sem elska raf- og danstónlistarsenuna en þetta tvennt fer gjarnan hönd í hönd. Á Sónar fá tækninördin eitthvað fyrir sinn snúð en undir merkjum Sónarspils fara fram þrjú námskeið sem öll eru opin almenningi. Í þessari hliðardagskrá verður framúrstefnuleg sýndarveruleikareynsla sett í gang, stjórntæki framtíðarinnar prufukeyrð og listrænar vefsíður sýndar svo fátt eitt sé nefnt. Þá geta áhugasamir lært að búa til sínar eigin fjarstýringar og kennslan er ókeypis þótt einhver efniskostnaður falli til.

Eins og stórkostleg tískusýning

Líkt og flestir vita er danstónlistarsenan eins og við þekkjum hana orðin um þrjátíu til fjörtíu ára þótt raftónlistin sé miklu eldri. Segja má að upptök senunnar megi rekja til Acid House-reifanna svokölluðu sem spruttu upp í Chicago milli 1980 til 1990. Þá tóku dansglaðir sig saman og settu upp danspartí, helst á afviknum stöðum, til dæmis í tómum vöruskemmum, svo var dansað fram á morgun við raftónlist. Menningin barst fljótlega til Bretlands en Underworld var til að mynda upphaflega stofnuð árið 1980 og forsprakkar hennar, Carl Hyde og Rick Smith, eru nú báðir í kringum sextugt.

„Þetta er ótrúlega lifandi og skemmtileg sena og á Sónar-hátíðina kemur alls konar fólk sem er á öllum aldri,“ segir Gyða og bætir við að sérstaklega gaman sé að virða fyrir sér klæðaburð gestanna sem margir hverjir leggi greinilega upp úr smartheitunum. „Týpurnar sem sækja hátíðina heim eru alls konar og á köflum verður Sónar-hátíðin eins og stórkostleg tískusýning í leiðinni,“ segir Gyða Lóa að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Enn einn Snapchat-perrinn
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Heiðar tjáir sig um Kveiksmálið og segir engin annarleg sjónarmið búa að baki ákvörðuninni

Heiðar tjáir sig um Kveiksmálið og segir engin annarleg sjónarmið búa að baki ákvörðuninni
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Sjáðu myndbandið umtalaða – Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni

Sjáðu myndbandið umtalaða – Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

„Galið“ ef hún verður áfram á Íslandi

„Galið“ ef hún verður áfram á Íslandi
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Borga metfé fyrir frænda Maradona – Tvöfalda félagsmetið

Borga metfé fyrir frænda Maradona – Tvöfalda félagsmetið