fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024

Teflonharmleikur

Óþelló í Þjóðleikhúsinu

Kristján Guðjónsson
Miðvikudaginn 4. janúar 2017 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Höfundur: Bryndís Loftsdóttir.

Shakespeare hlýtur að hafa haft mikið dálæti á Ítalíu. 10 af þeim 36 leikritum sem eftir hann liggja gerast þar í landi og talið er líklegt að hann hafi haft ágæt tök á ítölsku. Óþelló er annað af tveimur leikritum Shakespeares sem gerast í Feneyjum. Það er byggt á ítalskri sögu, Un Capitano Moro, eftir Cinthio og fjallar um ást og afbrýði, kynþáttafordóma, svik, hefnd og iðrun.

Márinn Óþelló hefur með frækinni frammistöðu unnið sig upp í hershöfðingjatign í Feneyjum. Hann skortir ekki sjálfstraustið og án þess að ráðfæra sig við Barbantíó ráðherra gerir hann sér lítið fyrir og kvænist einkadóttur hans, hinni fögru Desdemónu, á laun. Þá fer hann sínar eigin leiðir þegar hann útnefnir Kassíó sem sína hægri hönd, í stað þess að hlíta ráðleggingum og velja Jagó. Í hefndarskyni spinnur Jagó upp atburðarás sem fær Óþelló til að efast um trygglyndi eiginkonu sinnar. Í stjórnlausri afbrýði drepur Óþelló Desdemónu en kemst fljótt að því að efasemdir hans voru byggðar á fölskum og heimskulegum niðurstöðum. Hann endar söguna á að svipta sig lífi.

Veisluborð íslenskrar tungu

Sú leikgerð sem Gísli Örn Garðarsson færir hér á svið byggir á nýrri þýðingu Hallgríms Helgasonar. Betra veganesti hefði Gísli vart getað fengið því þýðingin er mikið afbragð. Það er því svolítið leitt hversu mikið verkið er einfaldað og stytt en það er svo sem alvanalegt með lengri verk Shakespeares. Verra er þó að leikararnir virðast sjaldnast gera meira en að narta í það drekkhlaðna veisluborð íslenskrar tungu sem Hallgrímur hefur á borð borið. Þarna eru orð og orðasamsetningar sem leikarar ættu að njóta að hafa í munni sér, hefja á loft og festa í hugum áhorfenda, í stað þess að þjóta hugsunarlaust að enda hverrar línu.

Líklega má lengi deila um upphafsatriðið sem byrjar sem ægifagurt myndlistarverk í líki grenitrés en endar sem langdregið skógarhöggsatriði þar sem Óþelló bindur enda á líf þess og snúninga. Atriðið kann að vera veisla fyrir unnendur myndlíkinga sem ef til vill sjá skepnuna Óþelló eyða bæði sakleysi og fegurð með vöðvastælum og villimannshætti. En æ, hvað þetta var langdregið og leiðinlegt.

Mynd: Eddi

Góðar hugmyndir en stenst ekki væntingar

Það var fín hugmynd hjá leikstjóra verksins að mála Óþelló ekki svartan heldur nefna hann einfaldlega útlending. Gervi og túlkun Ingvars E. Sigurðssonar í hlutverki Óþellós var hins vegar misheppnað. Hann skorti alveg hinn spennandi eiginleika stríðsmannsins sem aldrei hefur átt neinn til þess að halla sér upp að. Hann var frekar eins og staðalímynd af austurevrópskum smáglæpamanni, æpandi og gólandi með hlægilegt húðflúr á bringunni, óviðkunnanlegur og kynþokkalaus. Að ætla honum að hafa töfrað Desdemónu með frásögnum af lífi sínu var afskaplega ótrúverðugt.

Önnur góð hugmynd þessarar uppsetningar var á láta konu leika Jagó. Með skírskotun til reynslu kvenna í atvinnulífinu, þar sem framlag þeirra hefur sjaldnast verið metið til jafns við karla, gengur það vel upp að hún grípi til hefndar þegar Óþelló lítur fram hjá henni og veitir Kassíó stöðuhækkun. Það var hins vegar óskiljanlegt hvers vegna Nína Dögg Filippusdóttir var klædd eins og valdakona í kynlífsiðnaði, í hlutverki Jagós. Og það var jafnvel enn furðulegra að sjá hvernig öllum karlpersónum leikritsins tókst gjörsamlega að leiða bullandi kynþokka hennar fram hjá sér. Fyrir vikið skorti hana trúverðugri tengingar við aðrar persónur verksins og hún varð aldrei það lymskufulla illmenni sem hlutverkið gefur tilefni til. Betur hefði farið á allt annars konar nálgun.

Það skorti nokkuð upp á persónusköpun leikara í minni hlutverkum en þeir Arnmundur Ernst Backman og Guðjón Davíð Karlsson sýndu báðir á sér nýjar hliðar og miðluðu hlutverkum sínum vel til áhorfenda.

Leikmyndin er fyrirferðarmikil og leikur stórt hlutverk í upphafi sýningarinnar. Þegar öllu var loksins til tjaldað má segja að listilega vel unnin og fögur lýsingin hafi að einhverju leyti bjargað leikmyndinni fyrir horn, þrátt fyrir tilgerðina sem hékk yfir áhorfendum.

Að sýningunni standa frábærir listamenn sem fært hafa okkur framúrskarandi leiksýningar á liðnum árum. Í þetta skiptið standast þau ekki væntingar og listinn yfir það sem betur hefði mátt fara gæti verið lengri. Mest svíður þó að þessi mikli harmleikur skuli ekkert hafa snert við manni.

Sjá einnig: Jón Viðar gagnrýnir Óþelló: „Mér er skítsama þó að ég eyðileggi jólin fyrir ykkur“

Mynd: Eddi

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 klukkutímum

Linda Pé opnar sig um erfiðasta tímabil ævi hennar – „Ég var reið og bitur mjög lengi“

Linda Pé opnar sig um erfiðasta tímabil ævi hennar – „Ég var reið og bitur mjög lengi“
433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Hannes ræðir förina í brúðkaup Gylfa Þórs og allt fjaðrafokið í kjölfarið – „Þess vegna fannst mér svo brotið á minni réttlætiskennd“

Hannes ræðir förina í brúðkaup Gylfa Þórs og allt fjaðrafokið í kjölfarið – „Þess vegna fannst mér svo brotið á minni réttlætiskennd“
Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Veðrið hefur leikið við höfuðborgarbúa en það breytist um miðja vikuna

Veðrið hefur leikið við höfuðborgarbúa en það breytist um miðja vikuna
Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Pálmi er öldrunarlæknir: Líkt og að reykja 15 sígarettur á dag – Svona drögum við úr áhrifum ellinnar

Pálmi er öldrunarlæknir: Líkt og að reykja 15 sígarettur á dag – Svona drögum við úr áhrifum ellinnar
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Einum manni brá oft fyrir í svörum leikmanna Vals – „Það góða er að hann heldur sjálfur að hann sé með svo flottan stíl“

Einum manni brá oft fyrir í svörum leikmanna Vals – „Það góða er að hann heldur sjálfur að hann sé með svo flottan stíl“
Fókus
Fyrir 14 klukkutímum

Brynja og Þórhallur selja „hús hamingjunnar“ með söknuði

Brynja og Þórhallur selja „hús hamingjunnar“ með söknuði
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Unglingurinn skoraði sjö mörk fyrir Arsenal

Unglingurinn skoraði sjö mörk fyrir Arsenal