fbpx
Laugardagur 04.maí 2024

Langar til að færa fólki gleði

Daði Guðbjörnsson myndlistarmaður sýnir verk í Kirsuberjatrénu

Kolbrún Bergþórsdóttir
Miðvikudaginn 29. júní 2016 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Daði Guðbjörnsson myndlistarmaður sýnir fjölbreytileg verk á sýningu í Kirsuberjatrénu á Vesturgötu. „Þetta eru á milli 30–40 verk, yfirlit yfir það sem ég hef verið að gera í myndlistinni síðastliðinn vetur og á vordögum og sýnir vel ólíkar vinnuaðferðir í myndlist,“ segir Daði. „Þarna eru grafíkmyndir sem margir þekkja en ég hef verið að selja mikið af þeim síðustu áratugina. Ég sýni líka vatnslitamyndir en margir eru hrifnir af slíkum myndum, þar er notuð tækni sem er skemmtilega erfið fyrir listamanninn og það er gaman að eiga við hana. Á sýningunni eru einnig olíumálverk og ljósmyndir sem sýna borgina eða landslag og saman við þær set ég hluta úr málverkunum mínum með stafrænni tækni, þar er ég á nýjum slóðum.“

Daði, sem er afkastamikill listamaður, er spurður um vinnuvenjur sínar. „Ég er svokölluð A-týpa,“ segir hann. „Ég vakna og fæ mér morgunverð með konu minni og þegar hún fer í vinnuna þá fer ég í vinnustofuna og vinn þar til hádegis. Eftir það fer ég á Mokka og breytist í kaffihúsabóhem í klukkutíma eða svo. Þá er ég mjög kærulaus og læt eins og enginn sé morgundagurinn. Síðan fer ég heim og vinn aftur í þrjá til fjóra tíma.“

Andleg verk

Hvernig gengur þér að lifa af listinni?

„Það gekk mjög vel þar til kreppan kom, þá var ég óheppinn að því leyti að almenningur varð það skynsamur að hann fór að borga niður skuldir sínar í staðinn fyrir að fjárfesta í listaverkum. Núna er ástandið orðið heldur skárra og mér tekst þokkalega að lifa af listinni.“

Þú ert búinn að vera lengi að, sérðu sjálfur þróun í myndlist þinni?

„Ég kom inn myndlistarheiminn um 1980 með nýja málverkinu svokallaða þegar teikningin og litirnir voru hafðir mjög hráir. Spíralformið, tákn lífsorkunnar, hefur fylgt mér frá upphafi og seinni árin eru verkin orðin andlegri. Ég vinn lengur með myndirnar en áður og það sést á þeim. Litanotkunin er líka orðin yfirvegaðri, ég nota liti mikið en þeir eru ekki eins ögrandi og þeir voru á tímabili.“

Hugleiðir á hverjum degi

Má ekki segja að ákveðin bjartsýni einkenni verk þín?

„Mig langar til að færa fólki gleði. Öll þekkjum við gleðina en lífið tekur stundum á okkur, gleðin og jákvæðnin, sem er kjarninn í okkur, stíflast. Stundum virðist sem neikvæðnin hafi tekið völdin en hún er ekki kjarninn í okkur, heldur gleðin.“

Áttu auðvelt með að halda í gleðina?

„Rétta svarið við þessari spurningu er Sahajayoga. Ég hugleiði á hverjum degi, á morgnana og svo aftur á kvöldin og í vinnustofunni hlusta ég mikið á hugleiðslutónlist. Þannig að segja má að verk mín verði til í hugleiðslu.“

Finnst þér að fólk skynji andlega þáttinn í verkum þínum?

„Já, fólk talar um það. Stundum koma útlendingar í vinnustofuna og þeir átta sig strax á þessu en verða um leið kannski dálítið hissa því þetta er ekki það sem þeir áttu von á. Þegar ég var að hefja minn myndlistarferil var það einkennandi fyrir íslenska myndlist að myndir voru dökkar og þungt yfir þeim. Listamennirnir voru bundnir af hinum myrku öldum okkar, en þó eru vissulega til undantekningar frá dimmunni í íslenskri listasögu. Þetta hefur breyst með nýjum kynslóðum, það er komin meiri birta og litadýrð í myndlistina.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Rafmagnað andrúmsloft í upphafi kappræðna forsetaframbjóðendanna

Rafmagnað andrúmsloft í upphafi kappræðna forsetaframbjóðendanna
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Hrafnkell telur þetta ástæðuna fyrir að Íslendingar bregðist svona við

Hrafnkell telur þetta ástæðuna fyrir að Íslendingar bregðist svona við
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Gæti snúið aftur um helgina eftir meiðslin

Gæti snúið aftur um helgina eftir meiðslin
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Horfðu á nýjasta þátt af Íþróttavikunni – Kjartan Atli gestur

Horfðu á nýjasta þátt af Íþróttavikunni – Kjartan Atli gestur
Fókus
Fyrir 13 klukkutímum

Katrín og Vilhjálmur að „ganga í gegnum helvíti“

Katrín og Vilhjálmur að „ganga í gegnum helvíti“
Fókus
Fyrir 14 klukkutímum

Þetta í fari Vilhjálms fer mest í taugarnar á Katrínu

Þetta í fari Vilhjálms fer mest í taugarnar á Katrínu
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Lýsingar á meintu broti Kolbeins í ákæru – Málið var tekið fyrir í gær

Lýsingar á meintu broti Kolbeins í ákæru – Málið var tekið fyrir í gær
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Clattenburg segir upp hjá Nottingham eftir stutt stopp

Clattenburg segir upp hjá Nottingham eftir stutt stopp
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Eftir hörmulegt slys á Íslandi hefur hann þetta að segja um Landspítalann og starfsfólk hans

Eftir hörmulegt slys á Íslandi hefur hann þetta að segja um Landspítalann og starfsfólk hans