fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Fókus

Styttist í Sjóarann síkáta

Fjörug fjögurra daga bæjarhátíð

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 4. júní 2017 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það styttist í fyrstu bæjarhátíð ársins, Sjóarann síkáta, í Grindavík sem jafnan er fyrstu helgina í júní en fellur í ár á aðra helgi júnímánaðar sökum hvítasunnuhelgarinnar. Það hefur þó engin áhrif á bæjarbúa sem eru margir hverjir löngu byrjaðir að skipuleggja hvernig skreyta skal hús sitt og nánasta umhverfi fyrir helgina.

Vikulöng dagskrá

„Þetta er í 21. sinn sem hátíðin Sjóarinn síkáti er haldin og hér er jafnan mikið fjör alla helgina,“ segir Siggeir F. Ævarsson, upplýsingafulltrúi Grindavíkurbæjar. „Dagskráin er tilbúin og komin í prent og í henni má finna bæði hefðbundna, árlega viðburði, auk nokkurra nýrra.“

Sjóarinn síkáti byrjar að þessu sinni mánudaginn 5. júní þegar sýningin Samfélagið okkar verður opnuð í Kvikunni, en á henni sýna gamlar ljósmyndir atvinnuhætti og mannlíf í Grindavík. Fyrirlestrar verða síðan mánudags- og þriðjudagskvöld í Kvikunni. Á miðvikudaginn verður heimildamyndin Brotið sýnd í Kvennó, en hún fjallar um mannskætt veður sem gekk yfir Ísland. Myndin verður þátttakandi á næstu kvikmyndahátíð í Cannes í Frakklandi.

Dagskráin hefst svo af krafti föstudaginn 9. júní þegar götugrill verður um allan bæ og litaskrúðganga verður úr fjórum hverfum niður á hátíðarsvæði við bryggjuna. „Á bæjarhátíðinni er bænum skipt í fjögur hverfi sem hvert á sinn lit og sitt tákn og leggja flestir bæjarbúar mikinn metnað í skreytingar á húsum sínum og hverfum,“ segir Siggeir. Best skreytta húsið og best skreytta hverfið er valið á hverju ári og er það jafnan heiðurinn sem er í húfi, frekar en verðlaun.

Á hverju ári er eitt hús valið sem best skreytta húsið. Þetta hús í appelsínugula hverfinu hlaut verðlaun.
Best skreytta húsið Á hverju ári er eitt hús valið sem best skreytta húsið. Þetta hús í appelsínugula hverfinu hlaut verðlaun.

Fjöldi viðburða í boði

Helgina sjálfa verður svo heilmikil dagskrá, meðal annars keppnin um sterkasta mann í heimi, Íslandsmeistaramót í kasínu, hópakstur bifhjóla, leiktæki og andlitsmálun fyrir börnin, paintball og lasertag svo eitthvað sé nefnt.
„Hátíðin hefur verið afar vel sótt undanfarin ár og í fyrra fóru samkvæmt mælingum vefmyndavéla 40 þúsund manns í gegnum Grindavík um sjómannadagshelgina,“ segir Siggeir. Íbúafjöldi bæjarins margfaldast því þessa helgi, en í Grindavík búa um 3.200 manns.

[Dagskrána má finna á heimasíðu Grindavíkur] (http://grindavik.is/gogn/2017/Sjoarinn_sikati_-_dagskra_2017.pdf) og það er um að gera fyrir áhugasama að bregða undir sig betri fætinum og kíkja til Grindavíkur, skoða mannlífið og njóta skemmtiatriða á fjörugri bæjarhátíð.

Sterkustu menn Íslands þurfa að næra sig vel og það er nóg af góðum veitingastöðum í Grindavík. Þessir kappar mættu á Sterkasti maður í heimi fyrir tveimur árum og smelltu sér í pítsur á Papas milli aflrauna.
Kraftajötnar gæða sér á Papas-pítsum Sterkustu menn Íslands þurfa að næra sig vel og það er nóg af góðum veitingastöðum í Grindavík. Þessir kappar mættu á Sterkasti maður í heimi fyrir tveimur árum og smelltu sér í pítsur á Papas milli aflrauna.
Björgunarsveitin Þorbjörn og slysavarnadeildin Þórkatla eru órjúfanlegur hluti af hópnum sem kemur að bæjarhátíðinni. Slysavarnadeildin Þórkatla sér um sölu á ýmsum veitingum, sælgæti, candyfloss, blöðrum og fleiru á hátíðarsvæðinu sjálfu úr sölugám þeirra sem heitir Ellubúð. „Við erum búnar að gera þetta svo lengi að þetta er eins og vel smurð vél sem fer fulla ferð áfram um leið og við byrjum,“ segja þær Guðrún Kristín Einarsdóttir formaður og Ragna Gestsdóttir, ritari í stjórn Þórkötlu. Þær eru hér ásamt Önnu Magnúsdóttur félagskonu.
Fjöldi sjálfboðaliða hluti af hátíðinni Björgunarsveitin Þorbjörn og slysavarnadeildin Þórkatla eru órjúfanlegur hluti af hópnum sem kemur að bæjarhátíðinni. Slysavarnadeildin Þórkatla sér um sölu á ýmsum veitingum, sælgæti, candyfloss, blöðrum og fleiru á hátíðarsvæðinu sjálfu úr sölugám þeirra sem heitir Ellubúð. „Við erum búnar að gera þetta svo lengi að þetta er eins og vel smurð vél sem fer fulla ferð áfram um leið og við byrjum,“ segja þær Guðrún Kristín Einarsdóttir formaður og Ragna Gestsdóttir, ritari í stjórn Þórkötlu. Þær eru hér ásamt Önnu Magnúsdóttur félagskonu.
Það er jafnan nóg um að vera við Ellubúð. „Hún Elín Pálfríður Alexandersdóttir, sem er ein af stofnfélögum Þórkötlu og heiðursfélagi hennar í dag, var svo frábær að gefa okkur gáminn og stjórnarkonur voru sammála um að nefna hann Ellubúð henni til heiðurs.“
Ellubúð Það er jafnan nóg um að vera við Ellubúð. „Hún Elín Pálfríður Alexandersdóttir, sem er ein af stofnfélögum Þórkötlu og heiðursfélagi hennar í dag, var svo frábær að gefa okkur gáminn og stjórnarkonur voru sammála um að nefna hann Ellubúð henni til heiðurs.“
Björgunarsveitin Þorbjörn sér um kappróðurinn, koddaslaginn og skemmtisiglinguna, auk gæslu á hátíðinni sjálfri. „Það eru um 30 manns sem koma að hátíðinni af okkar hálfu,“ segir Otti Sigmarsson, varaformaður Þorbjarnar. „Þetta hefur alltaf gengið rosalega vel og það eru sennilega hátt í þúsund vinnustundir af hálfu sveitarinnar sem fara í hátíðina.“
Öflug björgunarsveit Björgunarsveitin Þorbjörn sér um kappróðurinn, koddaslaginn og skemmtisiglinguna, auk gæslu á hátíðinni sjálfri. „Það eru um 30 manns sem koma að hátíðinni af okkar hálfu,“ segir Otti Sigmarsson, varaformaður Þorbjarnar. „Þetta hefur alltaf gengið rosalega vel og það eru sennilega hátt í þúsund vinnustundir af hálfu sveitarinnar sem fara í hátíðina.“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

„Heilbrigður“ 29 ára faðir vaknaði með kviðverk – Nokkrum vikum síðar var hann látinn og fjölskylda hans varar aðra við

„Heilbrigður“ 29 ára faðir vaknaði með kviðverk – Nokkrum vikum síðar var hann látinn og fjölskylda hans varar aðra við
Fókus
Fyrir 2 dögum

Leikari úr vinsælum þáttum rekinn í burtu eftir furðulega uppákomu

Leikari úr vinsælum þáttum rekinn í burtu eftir furðulega uppákomu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sunneva gerði snarlið sem ofurfyrirsæturnar elska

Sunneva gerði snarlið sem ofurfyrirsæturnar elska
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segja frá djúpri tengingu tveggja einstaklinga sem er sönn og óumflýjanleg

Segja frá djúpri tengingu tveggja einstaklinga sem er sönn og óumflýjanleg
Fókus
Fyrir 3 dögum

Nýir Netflix-þættir vekja athygli fyrir djarfar kynlífssenur

Nýir Netflix-þættir vekja athygli fyrir djarfar kynlífssenur
Fókus
Fyrir 4 dögum

Bianca Censori í nærfötum úr nammi á götum New York

Bianca Censori í nærfötum úr nammi á götum New York