Bubbi Morthens svarar spurningum vikunnar:
Bubbi Morthens hefur verið þekktur í íslensku tónlistarlífi frá byrjun níunda áratugarins og allir þekkja lögin hans Bubba. Hann undirbýr nú útgáfutónleika nýjustu plötunnar, Túngumál, sem haldnir verða í Bæjarbíói í Hafnarfirði í ágúst. Bubbi svarar spurningum vikunnar.
Fæddur og uppalinn? Reykjavík.
Mér finnst gaman að … draga andann.
Síðasta kvöldmáltíðin? Sorgleg.
Brenndur eða grafinn? Alveg sama.
Hvað gerirðu milli kl. 17–19? Er með fjölskyldunni.
Samfélagsmiðlar eða dagblöðin? Bæði.
Hvað ertu með í vinstri vasanum? Ekkert.
Bjór eða hvítvín? Hvorugt.
Hver stjórnar fjarstýringunni á þínu heimili? Allir.
Hvernig var fyrsti kossinn? Geðveikur.
Hver væri titill ævisögu þinnar? Hann var maður margra galla og stórra kosta.
Hver er draumabíllinn? Rafmagnsbíll.
Fyrsta starfið? Að moka skurð.
Fallegasti staður á landinu? Kjósin og Aðaldalur.
Hvaða ofurkraft værir þú til í að vera með? Ofur, ofur ofurkærleika.
Gist í fangaklefa? Já.
Sturta eða bað? Sturta.
Húðflúr eða ekki? Mörg.
Hvaða leynda hæfileika hefur þú? Marga.
Hvað fékk þig til að tárast síðast? Einhver bíómynd.
Fyrirmynd í lífinu? Móðir mín, Chaplin, Búdda, Jesús, Muhammad Ali.
Hvaða sögu segja foreldrar þínir endurtekið af þér? Ég er munaðarlaus eins og stendur.
Ertu með einhverja fóbíu? Ekki lengur.
Hver er besta ákvörðun sem þú hefur tekið? Að eignast börn.
Furðulegasti matur sem þú hefur borðað? Ormar.
Hvað er neyðarlegasta atvik sem þú hefur lent í? Mörg, mörg, mörg.
Klukkan hvað ferðu á fætur? Milli fimm og sex.
Leigirðu eða áttu? Á.
Hvaða bók er á náttborðinu? Þær eru í kringum 20–30, núna er ég að lesa ljóðabókina Óratorek eftir Eirík Norðdahl, aðra ljóðabók, Digte, eftir danska skáldið Ole Sarvig, og Bush Pilot Angler eftir Lee Wulff, eins konar ævisögu.
Með hverjum, lífs eða liðnum, myndir þú vilja verja einni kvöldstund? Búdda.
Hver er fyrsta minning þín? Ég í fangi móður minnar.
Lífsmottó? Það fer allt vel.
Uppáhaldsútvarpsmaður/-stöð? Eiríkur Guðmundsson RÚV, Lestin Rás 1.
Uppáhaldsmatur/-drykkur? Matur frá Indlandi og Pakistan.
Uppáhaldstónlistarmaður/-hljómsveit ? Margir, margir.
Uppáhaldskvikmynd/-sjónvarpsþættir? Margir, margir.
Uppáhaldsbók? Moby Dick.
Uppáhaldsstjórnmálamaður? Enginn.