Fjölnota innkaupapokar á öll heimili
Kvenfélag Grímnes- og Grafningshrepps hefur síðastliðið ár unnið að umhverfisverkefninu „Ekki kaupa rusl!“ Markmiðið með verkefninu er að auka vitundarvakningu hjá íbúum Grímsnes- og Grafningshrepps og í vikunni fengu íbúar hreppsins fjölnota innkaupapoka frá kvenfélaginu, en þeir eru saumaðir úr gömlu gardínuefni og gömlum dúkum.
„Tildrög verkefnisins voru að á vorfundi félagsins í fyrra fengum við fræðslufyrirlestur um rusl, hversu mikið félli til, hvernig ruslmagn tengist efnahagssveiflum í samfélaginu, hvernig það er flokkað og hvar er hægt að gera betur svo að dæmi séu nefnd,“ segir Laufey Guðmundsdóttir, formaður kvenfélagsins.
Það sem stóð upp úr fyrirlestrinum að sögn Laufeyjar var setningin „Ekki kaupa rusl“, það er ekki kaupa of stórar pakkningar þar sem innihaldið verður aldrei klárað og minni einingar eru til, ekki kaupa hluti, föt, mat og annað sem ekki verður notað og fer þar af leiðandi beint í ruslið. „Einnig komu fram upplýsingar um það gífurlega magn af matvælum og lífrænum úrgangi sem fer beint í ruslatunnuna okkar, en sem hægt væri að koma í veg fyrir með vandaðri innkaupum, betri flokkun og endurnýtingu eins og með moltugerð eða hreinlega með því að fá sér hænur sem svo framleiða egg fyrir þig í staðinn,“ segir Laufey.
„Síðan áskotnaðist kvenfélaginu mikið magn af efni í alls kyns litum og mynstri auk gömlu dúkanna úr félagsheimilinu,“ segir Laufey. „Út frá því fórum við að huga að hvernig þetta efni myndi nýtast best og kviknaði sú hugmynd að sauma taupoka úr þessu og færa íbúum sveitarfélagsins þá að gjöf og þannig hvetja þá til að lágmarka plastpokanotkun við innkaup sem dæmi.“ Félagskonur skiptu með sér verkum, lituðu efni, sniðu pokana til, merktu og saumuðu.
„Við nýttum daginn Borg í sveit til að dreifa fyrsta hollinu af pokum á heimilin í Grímsnes- og Grafningshreppi og hvöttum um leið íbúa til að nota fjölnota poka. Það var tekið vel á móti okkur og gaman að heyra hvað margir notast nú þegar við fjölnota poka,“ segir Laufey sem þakkar fyrir góðar móttökur. Sannarlega gott framtak hjá Kvenfélagskonum í Grímsnes- og Grafningshreppi.