Empwr peysa iglo+indi í samstarfi við UN Women á Íslandi var kynnt nýlega á veitingastaðnum Geira Smart við Hverfisgötu. Empwr peysan er hönnuð af Helgu Ólafsdóttur og er fyrir bæði börn og fullorðna og er þetta í fyrsta sinn sem iglo+indi setur flík fyrir fullorðna á markaðinn. Allur ágóði rennur til rekstrar griðastaða fyrir konur á flótta.
Mynstrið letrinu á peysunum er sprottið frá Kamerún þar sem UN Women starfrækja griðastaði fyrir konur á flótta. Þar fá konur á flótta áfallahjálp, nám, atvinnutækifæri, öryggi, kraft og von.
PIPAR\TBWA og DÓTTIR gáfu vinnu sína við undirbúning átaksins auk þess sem hljómsveitin East of my Youth lánaði átakinu lagið Stronger.
Fjöldi góðra gesta mætti og styrkti átakið með kaupum á Empwr peysunni.
Stýrurnar Ólöf Guðmundsdóttir, hótelstýra Canopy hótel, og Marta Goðadóttir, kynningarstýra UN Women.
Pipar strákarnir Halldór R. Baldursson markaðsráðgjafi og Guðmundur Pálsson, framkvæmdastjóri hjá Pipar/TBWA, voru ánægðir með framtakið.
Flottar mæðgur Mæðgurnar Þóra Margrét Baldvinsdóttir og Lína Bjarnadóttir.
Brosmildar Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Þórey Vilhjálmsdóttir, formaður Ferðamálaráðs.
Bláklædd hjón Hjónin Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, og Hjörleifur Sveinbjörnsson þýðandi.
Empwr fyrir alla Empwr peysurnar eru fyrir alla, líka krakka.
Kvennakraftur Þessar flottu konur héldu sáttar út í sumarið með Empwr peysurnar sínar.
Lífið er lag Boðið var upp á töff tóna í takt við tilefnið.
Skemmtilegar sölukonur Þessar þrjár sáu um að deila peysum út til ánægðra kaupenda.