fbpx
Sunnudagur 24.maí 2026
Fókus

Sjáðu fyrstu stiklu sjónvarpsþáttanna um Harry Potter

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 26. mars 2026 08:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bið aðdáenda galdradrengsins Harry Potter styttist nú eftir væntanlegum sjónvarpsþáttum HBO en fyrsta stikla þáttanna er komin.

Dominic McLaughlin leikur Harry í þáttunum og í stiklunni má sjá hann fylgja í fótspor Daniel Ratcliffe í hlutverkinu ásamt erfiðleikum Harry í að búa hjá Dursley fjölskyldunni eftir að foreldrar hans eru myrtir af hinum alræmda Voldemort.

Stiklan sýnir ferska sýn á galdraheim J. K. Rowling sem Francesca Gardiner (Succession) og leikstjórinn Mark Mylod (Succession, Game of Thrones) hafa skapað.

Nákvæm dagsetning á sýningu þáttanna er ekki komin en búist er við að þáttaröðin verði frumsýnd á HBO Max um jólin, eða snemma árs 2027.

Radcliffe deildi með Good Morning America bréfi sem hann sendi til nýju leikaraliðsins.

„Ég vil ekki vera draugur í lífi þessara barna en ég vildi bara skrifa McLaughlin og segja: Ég vona að þú eigir frábæran tíma og enn betri en ég átti, ég skemmti mér konunglega, en ég vona að þið hafið það enn skemmtilegra. Ég sé bara þessar myndir af McLaughlin og hinum krökkunum og ég vil bara knúsa þau.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Billy Joel fordæmir væntanlega kvikmynd um hann sjálfan sem er gerð í hans óþökk

Billy Joel fordæmir væntanlega kvikmynd um hann sjálfan sem er gerð í hans óþökk
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fregnir af andláti Karls Bretakonungs stórlega ýktar

Fregnir af andláti Karls Bretakonungs stórlega ýktar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Bonnie Blue er ólétt – Í alvöru í þetta skiptið

Bonnie Blue er ólétt – Í alvöru í þetta skiptið
Fókus
Fyrir 4 dögum

Páfi gerði 6-7 og börnin trylltust úr gleði

Páfi gerði 6-7 og börnin trylltust úr gleði
Fókus
Fyrir 5 dögum

Biður íslensku þjóðina afsökunar á neyðarlegum mistökum – „Stundum sagt að allt geti gerst í beinni útsendingu“

Biður íslensku þjóðina afsökunar á neyðarlegum mistökum – „Stundum sagt að allt geti gerst í beinni útsendingu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sydney Sweeney setti allt á hliðina í gærkvöldi með þessu atriði í Euphoria

Sydney Sweeney setti allt á hliðina í gærkvöldi með þessu atriði í Euphoria
Fókus
Fyrir 1 viku

Jennifer sér eftir klippingunni sem tryllti aðdáendur

Jennifer sér eftir klippingunni sem tryllti aðdáendur
Fókus
Fyrir 1 viku

Rósa fékk áfall þegar hún las utan á umbúðirnar – „Mér leið í tvo daga eins og rúta hafi keyrt á mig“

Rósa fékk áfall þegar hún las utan á umbúðirnar – „Mér leið í tvo daga eins og rúta hafi keyrt á mig“