

Tónlistarmaðurinn David Byrne kemur til landsins og heldur tónleika í Laugardalshöll þann 29. júlí. Byrne gerði áður garðinn frægan með hljómsveitinni Talking Heads.
„David Byrne kemur til Íslands í sumar ásamt Ghost Train Orchestra með Who Is The Sky? túrinn, sem er þessa dagana að fara sigurför um heiminn og fá mikið lof gagnrýnenda.,“ segir í tilkynningu Senu Live.
Tónleikarnir fara fram í Laugardalshöll þann 29. júlí.
„Á nýju plötunni Who is the Sky? heldur hann áfram að kanna mannleg tengsl, sköpun og merkingu í síbreytilegum heimi,“ segir í tilkynningu. „Á plötunni vinnur hann í fyrsta skipti með Grammy-verðlauna framleiðandanum Kid Harpoon og áðurnefndri kammer hljómsveit, Ghost Train Orchestra. Afraksturinn er sameining á myndrænum hljóðheimi, húmor og hlýju. Tónleikarnir verða bæði persónulegir og stórir í sniðum; upplifun sem tengir, gleður og situr eftir.“
Eingöngu er selt í númeruð sæti, 8 verðsvæði eru í boði og miðaverð er frá 14.990 kr.
Forsala Senu Live fer fram á fimmtudag, 26. mars, kl. 10.
Almenn sala hefst svo á föstudag, 27. mars, kl. 10.
David Byrne hefur áður komið til landsins, það er árið 1994 þegar hann hélt tvenna tónleika í Háskólabíó.