fbpx
Föstudagur 20.mars 2026
Fókus

Þekkt tónlistarkona gerði óhugnanlega uppgötvun á heimili sínu – Sjáðu myndbandið

Fókus
Föstudaginn 20. mars 2026 11:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarkonan Sara Bareilles varð skelfingu lostin á dögunum þegar henni tókst loksins að opna litla hreinsilúgu í vegg á heimili sínu í Norður-Karólínu.

Í myndbandi sem söngkonan birti á Instagram heyrist hún syngja hálf taugaóstyrk um hræðsluna við að opna lúguna, áður en hún bregst skelfingu lostin við því sem blasti við henni. Þar inni var blanda af sóti, mold og rotnandi dýrabeinum.

Sara segirað hún hafi búið í umræddu húsi í nokkur ár en aldrei tekist að opna umrædda lúgu fyrr en nú.

Söngkonan lokaði lúgunni fyrst í skyndi en sneri síðar aftur vopnuð hönskum og poka til að fjarlægja leifarnar sem voru að líkindum af þvottabirni.

Við hreinsunina kom í ljós að fleiri hræ leyndust inni í veggnum. „Þetta er stór líkami, eins og kalkúnn,“ sagði Bareilles í myndbandinu sem má sjá hér að neðan.

Ef myndbandið hér að neðan birtist ekki er ráð að endurhlaða síðuna. Einnig er hægt að horfa á það á Instagram-síðu Söru.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Sara Bareilles (@sarabareilles)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Konan í Coldplay-hneykslinu fræga stígur fram til að hreinsa nafn sitt – „Hann var ekki maðurinn sem hann þóttist vera“

Konan í Coldplay-hneykslinu fræga stígur fram til að hreinsa nafn sitt – „Hann var ekki maðurinn sem hann þóttist vera“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Marvel-leikarinn biðst afsökunar á ummælum sem sármóðguðu aðdáendur síðasta sumar – „Ég biðst innilega afsökunar“

Marvel-leikarinn biðst afsökunar á ummælum sem sármóðguðu aðdáendur síðasta sumar – „Ég biðst innilega afsökunar“