fbpx
Föstudagur 20.mars 2026
Fókus

Gary Glitter sagður heilsuveill og einangraður í fangelsinu

Fókus
Föstudaginn 20. mars 2026 06:30

Gary Glitter er orðinn lélegur til heilsunnar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breski barnaníðingurinn og fyrrverandi poppstjarnan Gary Glitter er sagður vera mjög heilsuveill og verja mestum hluta dags síns einn í klefa sínum í fangelsi. Glitter, sem heitir réttu nafni Paul Gadd, var dæmdur í 16 ára fangelsi árið 2015 fyrir barnaníð.

Áður en sá dómur féll hafði hann komist í kast við lögin fyrir vörslu á barnaníðsefni og kynferðisbrot gegn börnum í Víetnam. Honum var sleppt úr haldi á reynslulausn árið 2023 en kallaður aftur í fangelsi sama ár fyrir brot gegn ákvæðum skilorðsins.

The Sun greinir frá því að Glitter, sem er 81 árs, afpláni nú dóm á sérstakri deild fyrir viðkvæma fanga í Channings Wood-fangelsinu í Devon. Þar er honum haldið aðskildum öðrum föngum af öryggisástæðum.

Samkvæmt heimildum er hann bundinn við hjólastól, nánast heyrnarlaus og á erfitt með að taka þátt í daglegri starfsemi fangelsisins. Hann er sagður eyða allt að 23 klukkustundum á dag í klefa sínum og fá máltíðir sendar til sín þar sem hann er of veikburða til að sækja matinn sjálfur.

Þrátt fyrir heilsubrestinn er hann sagður njóta meiri réttinda en gengur og gerist og fær hann til dæmis aðgang að sjónvarpi og síma.

Gadd var fyrst dæmdur til fangelsisvistar árið 1999 eftir að ólöglegt myndefni af börnum fannst í tölvu hans. Síðar var hann sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn ungum stúlkum bæði í Bretlandi og í Víetnam. Nýjasti dómur hans var 16 ára fangelsisvist fyrir kynferðisofbeldi sem átti sér stað á árunum 1975 til 1980.

Hann var látinn laus sjálfkrafa eftir að hafa afplánað helming dómsins í febrúar 2023, en var innan fárra vikna sendur aftur í fangelsi eftir að hafa sýnt hegðun sem vakti áhyggjur, meðal annars í tengslum við netnotkun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Marvel-leikarinn biðst afsökunar á ummælum sem sármóðguðu aðdáendur síðasta sumar – „Ég biðst innilega afsökunar“

Marvel-leikarinn biðst afsökunar á ummælum sem sármóðguðu aðdáendur síðasta sumar – „Ég biðst innilega afsökunar“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Glímdu við óútskýrða ófrjósemi en svo gaf læknir þeim ráð sem breytti öllu

Glímdu við óútskýrða ófrjósemi en svo gaf læknir þeim ráð sem breytti öllu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Katrín Edda flytur heim eftir 14 ár erlendis – Fer yfir stöðuna, hvar þau ætla að búa og hvers vegna

Katrín Edda flytur heim eftir 14 ár erlendis – Fer yfir stöðuna, hvar þau ætla að búa og hvers vegna
Fókus
Fyrir 3 dögum

Beggi með ráð um hvernig þú bregst við áliti annarra – „Þetta er kannski ekki vinsæl skoðun“

Beggi með ráð um hvernig þú bregst við áliti annarra – „Þetta er kannski ekki vinsæl skoðun“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Lestrarklefinn parar saman bækur og stjörnurnar – „Hver er besta pörunin?“

Lestrarklefinn parar saman bækur og stjörnurnar – „Hver er besta pörunin?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir stjörnurnar blindar á hversu grannar þær eru: Vara við vannæringu og vöðvarýrnun – „Hvenær er grannt of grannt?“

Segir stjörnurnar blindar á hversu grannar þær eru: Vara við vannæringu og vöðvarýrnun – „Hvenær er grannt of grannt?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram: „Skvísulætin í botn“

Vikan á Instagram: „Skvísulætin í botn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

One Battle After Another besta myndin og hlaut flest Óskarsverðlaun – Sinners með fáar styttur þrátt fyrir met í fjölda tilnefninga

One Battle After Another besta myndin og hlaut flest Óskarsverðlaun – Sinners með fáar styttur þrátt fyrir met í fjölda tilnefninga