

Leikarinn Eric Dane er látinn, 53 ára að aldri. Fjölskylda hans greindi frá að Dane lést seinni partinn í gær umvafinn ástvinum, þar á meðal eiginkonu sinni Rebeccu Gayheart og dætrum þeirra, Billie og Georgíu.
Í fyrra greindi hann frá því að hann hefði greinst með hreyfitaugungahrörnun (ALS).
Dane var þekktastur fyrir hlutverk sitt í þáttunum Grey´s Anatomy, þar sem hann lék í sex ár lækninn Marc Sloane sem var með viðurnefnið McSteamy og í þáttunum Euphoria,