

Brynja eignaðist frumburð sinn aðeins 18 ára gömul og segist hún ekki ráðleggja fólki að leggja af stað í barneignir svo snemma, þó hver og einn geri auðvitað eins og hann vilji.
Sonur hennar var draumabarn, að hennar sögn, mikill reglupési sem leið vel í rútínu.
„Í fyrsta bekk var hann greindur með ADHD og fór á lyf við því. Einnig er hann með málþroskaröskun og lesblindu.“
Fyrstu fjögur árin var hann í skóla í Breiðholti en síðan flutti fjölskyldan í Mosfellsbæ þar sem Brynja upplifði mikinn mun.
„Allt í einu leið mér eins og ég fengi allt á silfurfati sem ég reyndi að berjast fyrir í Breiðholti en fékk ekki.“
Sonur hennar hafði alltaf verið kraftmikill og ánægður með sig, sáttur í eigin skinni en þegar hann varð 17 ára fór hann allt í einu að efast um sig því hann vildi eignast kærustu eins og margir aðrir.
„Hann fór á Tinder og kynntist þar stelpu sem hann fór að hitta. Það leið ekki langur tími þar til ég fór að sjá rauð flögg en hann sá þau ekki.“
„Það kom í ljós þegar foreldrar hennar hringdu í mig að hún ætti kærasta og sögðu einnig að hann þyrfti að passa sig á henni.“
Í þættinum kemur fram að hún hafi alltaf fundið leið inn og brotið hann niður með þekktum aðferðum gaslýsingar og sálrænnar stjórnunar. Hún hafi sagt honum að enginn annar gæti elskað hann og gengið svo langt að segja að hann ætti að svipta sig lífi. Þá hafi hún tekið peninga sem hann hafði safnað og talið honum trú um að fólk væri á eftir henni sem hún þyrfti að borga.
„Ég veit það hljómar vitlaust en ég sagði stopp þegar hann kom heim með glóðarauga. Ég hafði áður hugsað um að kæra enda með mikið magn af skjáskotum en þarna höfðum við eitthvað í höndunum. Hann var með marga marbletti, klórför og annað svo ég fór með hann að fá vottorð og lagði fram kæru.“
Brynja segir að móttökurnar sem þau fengu hafi verið frábærar. „Hann tikkaði í öll box fyrir heimilisofbeldi. Ég átti að vera vitni en fórnaði því til að vera með honum útaf hans málþroskaröskun. Ég hélt að ég vissi hversu hrikalegt þetta var en þetta var mjög erfitt.”