

Í myndbandi sem söngkonan birti á Instagram heyrist hún syngja hálf taugaóstyrk um hræðsluna við að opna lúguna, áður en hún bregst skelfingu lostin við því sem blasti við henni. Þar inni var blanda af sóti, mold og rotnandi dýrabeinum.
Sara segirað hún hafi búið í umræddu húsi í nokkur ár en aldrei tekist að opna umrædda lúgu fyrr en nú.
Söngkonan lokaði lúgunni fyrst í skyndi en sneri síðar aftur vopnuð hönskum og poka til að fjarlægja leifarnar sem voru að líkindum af þvottabirni.
Við hreinsunina kom í ljós að fleiri hræ leyndust inni í veggnum. „Þetta er stór líkami, eins og kalkúnn,“ sagði Bareilles í myndbandinu sem má sjá hér að neðan.
Ef myndbandið hér að neðan birtist ekki er ráð að endurhlaða síðuna. Einnig er hægt að horfa á það á Instagram-síðu Söru.
View this post on Instagram