

Hjónin Vilhjálmur Bretaprins og Katrín prinsessa sýna þolendum Jeffrey Epstein kynferðisbrotamanns stuðning í fyrstu yfirlýsingu hjónanna um Epstein-skjölin sem gefin var út í dag, mánudaginn 9. febrúar.
Hjónin segjast hafa verið afaf áhyggjufull vegna uppljóstrana sem halda áfram að koma fram í kjölfar birtingar milljóna blaðsíðna af skjölum í Epstein-skjölunum.
„Ég get staðfest að hjónin hafa verið afar áhyggjufull vegna áframhaldandi uppljóstrana. Hugur þeirra beinist enn að þolendunum,“ bætti talsmaður hjónanna við frá Saudi-Arabíu, þar sem Vilhjálmur er í upphafi opinberrar þriggja daga heimsóknar.
Þetta er í fyrsta skipti sem hjónin hafa opinberlega tjáð sig um málið sem meðal annars leiddi til þess að frændi Vilhjálms, Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi Bretaprins, hefur verið undir aukinni gagnrýni vegna tengsla hans við Epstein.
Þegar Andrew var sviptur öllum konungstitlum sínum og heiðursmerkjum, og honum sagt að afsala sér leigusamningi á heimili sínu, Royal Lodge, af bróður sínum, Karli konungi, í október 2024, gerðu nánir vinir hjónanna það ljóst að þeir studdu gjörðir Karls. Þeir deildu yfirlýsingu Buckinghamhallar á þeim tíma.
Yfirlýsingunni hjónanna í dag lauk með orðunum: „Þeirra hátignir vilja gera það ljóst að hugsanir þeirra og djúpstæð samúð hafa verið og munu vera með þolendum og eftirlifendum alls kyns ofbeldis,“ sagði að lokum í yfirlýsingunni.
Í ræðu á ráðstefnu alþjóðastjórna í Dúbaí þann 3. febrúar varð yngri bróðir Andrew, Edward prins, fyrsti háttsetti konungsfjölskyldumeðlimurinn til að fjalla opinberlega um nýjustu atburði tengda Epstein-málinu og sagði að það væri „mjög mikilvægt að minnast þolendanna“.
Andrew sagði sig frá opinberum skyldustörfum sínum árið 2019 eftir að hafa verið í viðtali við BBC þar sem hann ræddi samband sitt við Epstein. Móðir hans, Elísabet drottning, svipti son sinn hertitlum hans og verndarvængjum í janúar 2022, eftir að dómari hafnaði tilraun hans til að fá málsókn Virginiu Giuffre, þolanda Epstein, gegn Andrew vegna kynferðisbrots vísað frá. Andrew hefur ítrekað neitað ásökunum Giuffre og náði sáttum við hana árið 2022.
Kensington-höll, þar sem Vilhjálmur og Katrín hafa skrifstofu sína, vonast til að athyglin geti beinst að því sem aðstoðarmenn kalla mikilvæga diplómatíska heimsókn Vilhjálms í Saudi-Arabíu.