fbpx
Þriðjudagur 30.september 2025
Fókus

„Það eru tökurnar sem skipta máli“

Fókus
Þriðjudaginn 30. september 2025 08:30

Bjarni rennir fyrir fiski í Laxá í Kjós

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í sjöunda þætti af Veiðinni með Gunnar Bender, sem unninn er í samstarfi við Veiðar.is, er slegist í för með Bjarna Brynjólfssyni í Laxá í Kjós þar sem rennt er fyrir sjóbirtingi og laxi í blíðaskaparveðri í september. Bjarni er ötull veiðimaður en Kjósin, sem er að hans mati ein af mest krefjandi ám landsins, er ein af hans uppáhalds. Bjarni hnýtir sínar flugur sjálfur og segir að það auki ánægjuna af því að standa við árbakkann. Leynivopnið Rússinn var gjöfull og það var mikið líf í ánni þrátt fyrir að fiskarnir hafi ekki verið áfjáðir í að koma í land.

„Það eru tökurnar sem skipta máli,“ segir Bjarni brosandi og naut sín í botn.

Bjarni Brynjólfsson og Gunnar Bender fara yfir stöðuna

 

Veiðar.is er nýr frétta- og upplýsingavefur um sport- og laxveiðar í íslenskri náttúru. Á vefnum eru nýjustu fréttir úr veiðinni og því sem þar gerist á hverjum tíma, auk viðtala og frásagna af veiðiferðum, reynslu og upplifun einstaklinga og hópa í veiðimennsku. Gunnar Bender ritstjóri er annálaður áhugamaður um stangveiðar í ám og vötnum, með áratuga reynslu af sportveiði og veiðimennsku. Gunnar hefur ferðast um landið árið um kring og hitt sportveiðifólk og aðra áhugasama um veiðar og útivist.

Í þessum ferðum sínum dreifir Gunnar m.a. Sportveiðiblaðinu, einu mest lesna og virtasta tímariti um laxveiðar á Íslandi en Gunnar stofnaði til útgáfunnar fyrir 40 árum og hefur verið þar ritstjóri og útgefandi síðan. Veiðiþætti Gunnars þekkja margir en hann hefur framleitt slíka þætti um veiðar í villtri náttúru Íslands og frá helstu laxveiðiám landsins. Nokkrir af veiðiþáttum Gunnars eru aðgengilegir á veidar.is og á YouTube rásinni Veiðar.

Myndefni frá sportveiðinni skipar eðlilega háan sess í uppsetningu á vefsvæði veidar.is og er nú þegar komið talsvert mikið safn mynda af veiðimönnum og aflabrögðum þeirra við fjölbreyttar aðstæður. Á veidar.is er auk þess vísir af myndasafni þar sem eru myndir af helstu fuglum úr íslenskri náttúru og sem hafa orðið á vegi ljósmyndarans Maríu Bjargar Gunnarsdóttur.

Hér má sjá nýjasta þáttinn í heild sinni:

Veiðin Laxá í Kjós.mp4
play-sharp-fill

Veiðin Laxá í Kjós.mp4

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 5 dögum

Bandarískur ferðamaður fékk menningarsjokk á Íslandi – „Ég geng inn og sé þá fullt af nöktum konum”

Bandarískur ferðamaður fékk menningarsjokk á Íslandi – „Ég geng inn og sé þá fullt af nöktum konum”
Fókus
Fyrir 5 dögum

Carmen Electra 53 ára í djarfri myndatöku

Carmen Electra 53 ára í djarfri myndatöku
Hide picture