Tónlistarmaðurinn Robin Thicke og unnusta hans April Love Geary giftu sig í gær í Cabo San Lucas í Mexík. Page Six hafði eftir heimildarmanni í gær að veisluhöldin myndu standa yfir í þrjá daga.
Fyrirsætan Stormi Bree póstaði mynd af parinu á Instagram þar sem þau sjást brosandi á flugvelli og skrifaði við: „Förum og giftum ykkur“. Geary sjálf póstaði svo myndum af sér að pakka en sagði ekki hvert förinni væri heitið.
„Ég er að gifta mig um helgina og ég fer á morgun. Ég er búin að vera stressuð í allan dag og fer stöðugt yfir í hausnum á mér hverju ég þarf að pakka fyrir mig og fyrir krakkana. Og auðvitað er ég ekki byrjuð að pakka neinu.“
Parið byrjaði saman árið 2014 og Thicke bað sinnar heittelskuðu tvisvar. Fyrst jólin 2018 þegar hún var ófrísk af fyrsta barni þeirra. Parið á þrjú börn saman: Mia Love, Lala Alain og Luca Patrick. Thicke bað hennar svo aftur í þessum mánuði á kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi, staðnum þar sem þau opinberuðu samband sitt fyrir 10 árum.