Í nýjustu markaðsherferð Póstsins, Sendum með hraði, hefur fimm ára ferfætlingur, tíkin Kiko, slegið í gegn í aðalhlutverki einnar auglýsingarinnar. Kiko, sem verður sex ára í júlí, stóð sig alveg einstaklega vel í verkefninu að sögn þeirra sem að því komu, enda fékk hún nóg af uppáhaldinu sínu, lifrarpylsu, fyrir dugnaðinn á meðan á tökum stóð. Eigandi Kiko, Hrafnhildur Vala Valsdóttir, segir að Kiko sé barngóð og kát en afskaplega þrjósk og mathákur mikill.
„Hún er Chow Chow en tegundin á rætur sínar að rekja til norðurhluta Kína,“ svarar Hrafnhildur Vala aðspurð um það af hvaða hundakyni Kiko sé. „Chow Chow hundar eru miklir varðhundar og Kiko er þar engin undantekning því hún passar mjög vel upp á okkur fjölskylduna og húsið okkar. Hún er duglegur öryggisvörður og geltir og lætur vita ef einhver óviðkomandi kemur upp að húsinu.“
Róleg og kát en afskaplega þrjósk
Beðin um að lýsa Kiko segir Hrafnhildur Vala að hún sé mikill karakter og með einstakan persónuleika. „Hún er mjög róleg, barngóð og kát en afskaplega þrjósk. Hún er mjög klár og skilur allt sem fólk segir við hana. Það er þó misjafnt hvort hún ákveði að hlýða því eður ei. Kiko er líka algjör mathákur og elskar allan mat en þó er lifrarpylsa, ostur og ristað brauð með miklu smjöri í mestu uppáhaldi. Stundum fær hún smávegis af brúnni sósu yfir matinn sinn sem henni finnst rosalega gott og ekki er verra ef það er líka dálítið af kjöti með. Svo er hún búin að ná nágrönnunum á sitt band sem kasta stundum til hennar harðfisksbita þegar hún er úti í garði.“
Hrafnhildur Vala segir Kiko þykja fátt betra en að vera í sólbaði eða úti á svölum. „Þar getur hún fylgst með fólkinu sem gengur fram hjá. Þó svo að hún þurfi ekki mikla hreyfingu elskar hún göngutúra og að hitta nýja hundavini. Kiko er alveg til í að gera ýmsar þrautir og kúnstir fyrir nammiverðlaun en hún hefur til dæmis engan áhuga á að elta bolta. Henni finnst við bara skrýtin að ætlast til þess að hún sæki bolta sem við köstum eitthvert.“
Auglýsingin sem Kiko leikur aðalhlutverkið í segir frá því hvernig uppáhaldsbangsi voffa skemmist en því er kippt í lag með einföldum hætti: Eigandinn pantar nýjan bangsa á netinu og fyrr en varir er Pósturinn búinn að koma sendingunni til skila í Póstbox svo voffi getur tekið gleði sína á ný. Skyldi Kiko eiga sér uppáhaldsleikfang?
„Hún einfaldlega elskar bangsa,“ segir Hrafnhildur Vala, „og hún á fullt af þeim. Hún fer með þá úti í garð eða í bælið sitt og kúrir með þeim á nóttunni eins og þeir séu hvolparnir hennar.“