Skoska leikkonan Rose Leslie segir að grimmur íslenskur vetur hafi verið hvati að því að hún og eiginmaður hennar, Kit Harington, felldu hugi saman þegar þau léku í þáttunum Game of Thrones. Einnig að það sé eitt atriði í þáttunum sem hún vill ekki að börnin þeirra sjái.
Rose og Harington urðu heimsfræg fyrir um 15 árum þegar þau léku saman í þáttunum. Harington lék aðalhlutverkið Jon Snow en Rose lék villingastúlkuna Ygrytte sem hann átti í stuttu en stormasömu sambandi við.
Leikaraparið giftist árið 2018 og eiga þau saman tvö börn í dag. Í viðtali við tímaritið Tatler segir Rose að það sé atriði sem hún vilji helst ekki að börnin sín sjái. Það er atriðið þekkta þar sem Ygrytte tekur sveindóm Jon Snow í íshelli.
„Ég held að við ráðum því ekki,“ sagði hún aðspurð um hvort börnin mættu sjá seríuna. „Ef þau vilja sjá mömmu sína og pabba gera þetta – ég er ekki að tala um hellisatriðið, ég myndi heldur vilja sleppa því.“
Fjölmörg atriði þáttanna voru tekin upp á Íslandi, þar á meðal atriðin sem áttu að gerast norðan við Vegginn mikla, þar sem Ygrytte og hinir villingarnir bjuggu.
„Þetta var í fyrsta skiptið sem ég fór til Ísland og þvílík kynning á landinu sem þetta var. Þetta var um vetur sem þýddi að við höfðum aðeins fjóra tíma af dagsljósi á dag til þess að taka upp,“ sagði hún. „Við kláruðum klukkan 14 á daginn og vorum í fríi restina af deginum. Við vorum í óbyggðunum, gistum á sama hóteli þannig að það myndaðist gott samband á milli okkar.“