Tanja Ýr ræðir um þetta í hlaðvarpsþættinum Teboðið. Hún eignaðist son sinn 23. janúar 2025 á Íslandi, en var þá búsett í Bretlandi. Hún var tvístíga með að fæða á Íslandi, einmitt vegna ótta að eitthvað svona myndi gerast. Nokkrum dögum eftir að sonurinn kom í heiminn birtist frétt á Mbl um að drengurinn væri fæddur, en hvorki Tanja Ýr né kærasti hennar, Ryan, höfðu greint frá tíðindunum opinberlega.
„Svo allt í einu byrjaði ég að fá fullt af skilaboðum á Instagram og Facebook. Svo sendi systir mín mér grein og það var bara búið að tilkynna það að ég væri búin að eiga hann, en ég var ekki búin að tilkynna það neins staðar,“ sagði Tanja í Teboðinu.
Tönju leið eins og það hafi verið tekið eitthvað frá henni, hún fékk ekki að segja vinkonum sínum frá að drengurinn væri fæddur, hennar fyrsta barn, heldur lásu þær um það í fjölmiðlum.
Fréttin birtist einnig fyrir fimm daga skoðun drengsins, sem fékk blessunarlega fulla einkunn þegar kom að henni.
„Mig langar ótrúlega mikið að vita [hvernig þessu var lekið]. Ég hef heyrt ótrúlega margt heilbrigðisstarfsfólk tala og slúðra, bæði til mín eða í partýi, eða heyrt af því. Manni langar auðvitað að halda það besta og vera góði aðilinn og ekki með neikvæðni, en því miður er það bara staðreynd,“ segir Tanja Ýr og bætir við að hún hafi verið efins um að eiga á Íslandi.
„Ég vildi fyrst eiginlega ekki eiga á Íslandi en samt innst inni vildi ég það. En ég vildi það ekki út af þessu, þá ákvað ég að hafa heimafæðingu því mér finnst ég öruggust á Íslandi. Þess vegna langaði mig ekki að gera þetta því ég veit að það er verið að slúðra, því miður sko.“
@tebodid Fjölmiðlar sem tilkynna fæðingu á undan foreldrum og fólk sem lekur því í fjölmiðla að kona er uppá fæðingardeild, are you well? 🥹 @Tanja Ýr ♬ original sound – Teboðið 🎀🫖💓🍨
Tanja Ýr lét MBL heyra það á sínum tíma. „Finnst þetta eiginlega óskiljanlegt og vona innilega að mín bíði afsökunarbeiðni þegar ég vakna eftir lögnina mína í dag,“ sagði hún í lok janúar.