Nicolas nokkur hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum fyrir myndir og myndbönd sín þar sem hann ferðast um landið og tekur upp myndefni af holum á vegum út um allt land.
Nicolas er kominn með yfir nokkurn fjölda fylgjenda á TikTok og Instagram fyrir uppátæki sitt. Hann segir þar sjálfur að hann hafi mikinn áhuga á holum á vegum landsins.
„Hola, ég heiti Nicolas og mér finnst rosa gaman að holum! Ég skoða holur á vegunum. Ég leita að holum. Ég tek mynd af holum og mér finnst rosa gaman að heilsa holum. Það er nóg að gera hjá mér af því að það eru holur hér, holur þar, holur hinu megin, hola alls staðar. Svo fylgstu með, komdu með, hola.“
@_hola_nicolas_ ¡Hola! Fylgstu með mér skoða holur á vegum landsins 🕳️👋🏼 #fyp #hola #íslenskt ♬ Eða? – Gusgus
Nicolas er hress og skemmtilegur og hæstánægður með allar holurnar sem hann finnur, sem er nóg af.
@_hola_nicolas_Ég fann margar holur og eina riiiiiisastóra😁😁😁 ¡HOLA!♬ original sound – Nicolas
Mjög sérstakt áhugamál en vissulega er mikil þörf á að vekja athygli á þessu vandamáli sem blasir við ökumönnum á ferðalögum víða um landið.
Ekki er vitað meira um Nicolas en þessi áhugi hans á holum á vegum landsins er alla vega farinn að beina sviðsljósinu að honum og holunum.
Nicolas er svo búinn að taka áhugamálið lengra og útbúa lagalista á Spotify með lögum um holur.