fbpx
Þriðjudagur 16.september 2025
Fókus

Áhorfendur undrandi á sérkennilegri hegðun Denise Richards – „Á hvaða lyfjum er hún?“

Fókus
Föstudaginn 1. desember 2023 08:34

Skjáskot/Twitter/Bravo

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áhorfendur raunveruleikaþáttarins Real Housewives of Beverly Hills lýstu yfir áhyggjum sínum af leikkonunni Denise Richards á samfélagsmiðlum.

Hegðun hennar í nýjasta þættinum hefur vakið mikla athygli. Richards var húsfreyja í níundu og tíundu þáttaröð en hætti í september 2020, eftir að það slitnaði upp úr vinskap hennar og leikkonunnar og húsfreyjunnar Lisu Rinnu.

Þrettánda þáttaröð er í loftinu og í nýjasta þættinum var Richards gestur í kannabis-matarboði húsfreyjunnar Kyle Richards ásamt annarri fyrrverandi stjörnu þáttanna, Camille Grammer.

Richards virtist ekki vera alveg með á nótunum að mati áhorfenda og var að gera sérkennileg svipbrigði sem hafa vakið athygli.

Áhorfendur höfðu nóg um hegðun Richards að segja á Twitter.

„Hvað er í gangi með Denise?“ sagði einn.

„Denise Richards var í algjöru rugli í kvöld,“ sagði annar.

Richards stofnaði OnlyFans síðu í júní 2022, viku eftir að dóttir hennar, Sami Sheen, byrjaði að selja efni á síðunni.

Sjá einnig: Denise Richards byrjar á OnlyFans viku á eftir dóttur sinni

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Sveindís hitti loks líffræðilega móður sína þegar hún var kistulögð –„Þegar ég horfði niður í kistuna sá ég sjálfa mig“

Sveindís hitti loks líffræðilega móður sína þegar hún var kistulögð –„Þegar ég horfði niður í kistuna sá ég sjálfa mig“
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég fann að ég er nógu sterk til þess að standa með sjálfri mér og berjast“

„Ég fann að ég er nógu sterk til þess að standa með sjálfri mér og berjast“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Kynlíf með kærastanum er ótrúlegt – En það sem hún fann í tölvunni sneri veröld hennar á hvolf

Kynlíf með kærastanum er ótrúlegt – En það sem hún fann í tölvunni sneri veröld hennar á hvolf
Fókus
Fyrir 3 dögum

Kogga og Magnús giftu sig á dánarbeði hans – „Hann náði að segja já, svo var hann farinn“

Kogga og Magnús giftu sig á dánarbeði hans – „Hann náði að segja já, svo var hann farinn“