Unnur Birna Björnsdóttir, tónlistarkona og djassgeggjari, með meiru, er viðmælandi Mumma í nýjasta þætti Kalda Pottsins. Hún er líklega hvað þekktust fyrir frábæran fiðluleik og söng en hún semur líka sjálf tónlist og hefur tekið þátt í mörgum leikverkum þar sem hún hefur bæði leikið, dansað og spilað. Unnur Birna hefur meðal annars spilað með Ian Anderson, söngvara hljómsveitarinnar Jethro Tull, sungið í rokkóperu Jethro Tull, spilað með Fjallabræðrum og síðustu árin hafa hún og Björn Thoroddsen gítarsnillingur, ásamt fleiri flottum tónlistarmönnum, töfrað fram margar tónlistarveislurnar. Í þættinum ræða þau Mummi meðal annars um listferil hennar, af hverju hún getur ekki hugsað sér að setja börnin sín of ung á leikskóla og hvernig er að vera hún með sjálfri sér.
Unnur Birna átti neikvæða lífsreynslu á leikskóla. Hún var þá í leikskóla úti á landi og segir að þar hafi hún mátt horfa upp á líkamlegar refsingar, sem enginn hafi lyft brúnum yfir á þeim tíma.
„Ég er búin að vera á að átta mig á því hvers vegna ég er enginn aðdáandi leikskóla. Við bara horfðum þar upp á líkamlegt ofbeldi. Maður lærði að ef maður gerði ekki það sem manni var sagt þá þýddi það refsingu.“
Unnur greinir frá því að þetta hafi haft djúpstæð áhrif á líf hennar. Hún hafi verið opið og hugrakkt barn áður en hún gekk í þennan leikskóla en í kjölfarið varð hún óframfærin og átti erfitt með að segja hug sinn eða vera hún sjálf. Það tók töluverðan tíma að læra það að hún mætti vera eins og hún er án þess að þurfa að óttast refsingu. Hún er búin að vinna úr þessu í dag í gegnum mikla sjálfsvinnu. Gagnvart hennar eigin börnum líti hún þó enn tortryggnum augum á leikskóla
Börn séu viðkvæm og berskjölduð. Verði þau vitni að einhverju misjöfnu þá taki þau það með sér út lífið. Fólk þurfi að nálgast börn af virðingu og gæta þess hvernig við þau er talað og hvernig þeim er leiðbeint.
Unnur Birna ræðir líka hvernig þegar hún var í tónlistarnámi hafi verið litið hornauga á aðra tónlist en þá klassísku. Sjálf var Unnur hrifin af djassi og fór að spila með pabba sínum í kvöldverðarboðum. Þá lenti hún í þeirri undarlegu stöðu að vera gagnrýnd fyrir að stela verkefnum, sem nemandi, af kennurum sínum, þrátt fyrir að þeir hafi neitað að spila annað en klassíska. Þessi mótstaða gegn djassi og annarri tónlist kynti þó bál undir Unni sem fór að spila djass á fiðluna sem og rokk og annað í miklum mótþróa.
Hlusta má á viðtalið við Unni og fyrri þætti á tyr.is eða á Spotify.
Kaldi Potturinn er spjallþáttur þar sem Mummi fær til sín á sviðið heima alls konar fólk úr öllum kimum samfélagsins, með fjölbreytta lífsreynslu, djúpa sýn á tilveruna og sterkar skoðanir á lífinu. Fólk sem fer sínar eigin leiðir. Mummi hefur sjálfur sterkar skoðanir og er óhræddur við að tjá sig um hvað sem er, svo allt fær að flakka á sviðinu. Kaldi Potturinn hefur ekkert að fela.
Dagskrárgerð Kalda pottsins er í höndum Mumma og stjórn upptöku er í höndum Gunnars Bjarna en upptökur fara fram á heimili Mumma og eiginkonu hans, Þórunnar Wolfram, á Gömlu Borg í Grímsnesi.