fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Fókus

Sækir um skilnað eftir 12 ára hjónaband

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Miðvikudaginn 20. september 2023 08:32

Danny Masterson og Bijou Phillips við réttarhöldin í maí. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkonan og fyrirsætan Bijou Phillips hefur sótt um skilnað frá leikaranum Danny Masterson.

Masterson var fundinn sekur í maí 2023 um að hafa nauðgað tveimur konum. Dómurinn var kveðinn upp þann 7. september síðastliðinn og var hann dæmdur til 30 ára fangelsisvistar.

Phillips, 43 ára, og Masterson, 47 ára, hafa verið gift síðan árið 2011 og eiga saman níu ára gamla dóttur.

Leikkonan, sem er hvað þekktust fyrir leik sinn í kvikmyndunum Almost Famous og Bully, er sögð hafa hágrátið þegar dómurinn yfir eiginmanni hennar var kveðinn upp.

Hún hefur nú sótt um skilnað og hefur einnig óskað eftir því að nafni hennar verði breytt úr Bijou Phillips Masterson í Bijou Phillips.

Mynd/Getty

Masterson er hvað þekktastur fyrir að leika Steven Hyde í vinsælu þáttunum That 70‘s Show í kringum aldamótin.

Hann lék einnig eitt af aðalhlutverkunum í Netflix-þáttunum The Ranch en var rekinn í desember 2017, eftir að fjórar konur sökuðum hann um nauðgun. Hann neitaði öllum ásökunum á sínum tíma.

Í júní 2020 var hann ákærður fyrir að nauðga þremur konum á heimili sínu í Hollywood Hills á árunum 2001 til 2003.

Aðalmeðferð í málinu fór fram í október og nóvember í fyrra en dómari dæmdi réttarhöldin ómerk þar sem kviðdómur gat ekki komið sér saman um úrskurð.

Málið var tekið upp að nýju í maí síðastliðnum og var hann fundinn sekur um að hafa nauðgað tveimur af þremur konunum sem kærðu hann. Þann 7. september var dómurinn kveðinn upp og var hann dæmdur til 30 ára fangelsisvistar.

Sjá einnig: Hrottalegar lýsingar í kynferðisbrotamáli Danny Masterson og ógnvekjandi viðbrögð Vísindakirkjunnar

Masterson bar ekki vitni við réttarhöldin og hefur haldið fram sakleysi sínu frá upphafi.

Leikarinn er í vísindakirkjunni og segjast þolendur hans hafa verið áreittir af kirkjunni eftir að hafa leitað til lögreglu vegna hans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Wacken Metal Battle: Flösuþeytarar etja kappi á laugardag um að fá að spila í fyrirheitna landinu

Wacken Metal Battle: Flösuþeytarar etja kappi á laugardag um að fá að spila í fyrirheitna landinu
Fókus
Í gær

Sjáðu VÆB æfa á stóra sviðinu í Sviss

Sjáðu VÆB æfa á stóra sviðinu í Sviss
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu stjörnurnar á Met Gala 2025

Sjáðu stjörnurnar á Met Gala 2025
Fókus
Fyrir 3 dögum

Kynlífsathöfnin sem hún hataði mest með Hugh Hefner

Kynlífsathöfnin sem hún hataði mest með Hugh Hefner