fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Segir hana hafa hótað sér og reynt að drepa bróður sinn

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 26. apríl 2022 10:00

Kylie Jenner, Robert Kardashian og Blac Chyna. Myndir/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kylie Jenner gaf skýrslu fyrir dómi í gær í meiðyrðamáli Blac Chyna gegn henni, systrum hennar og móður. Hún sagði að Blac Chyna hefði reynt að drepa bróður sinn, Robert Kardashian, og hefði hótað sér í smáskilaboðum.

Blac Chyna er barnsmóðir og fyrrverandi kærasta Robert Kardashian. Hún hefur stefnt Kim Kardashian, Khloé Kardashian, Kylie Jenner og Kris Jenner fyrir meiðyrði og fer fram á 100 milljónir dollara í skaðabætur, eða um 13 milljarða króna.

Hún heldur því fram að framleiðendur sjónvarpsstöðvarinnar E! hafi orðið fyrir áhrifum Kardashian-Jenner kvennanna þegar kom að því að aflýsa fyrirhuguðum raunveruleikaþætti hennar, Rob & Chyna. Samkvæmt stefnu Blac Chyna segir hún að systurnar hefðu krafist þess að framleiðslu þáttanna yrði hætt. Hún sakar þær einnig um „drusluskömmun“ í hennar garð á samfélagsmiðlum og fyrir að vera „fjölmiðlaníðingar“ á meðan tökum á síðari þáttaraðarinnar stóð.

Sjá einnig: Dregur Kardashian-Jenner veldið fyrir dóm – „Kviðdómur mun loksins fá að heyra hvað gerðist á bak við luktar dyr“

Málið hefur vakið mikla athygli, ekki einungis vegna þess sem hefur átt sér stað í dómsal heldur einnig utan hans. Eins og þegar móðir Blac Chyna, Tokyo Toni, lét Kardashian-Jenner fjölskylduna fá það óþvegið í beinni á samfélagsmiðlum og kallaði þær öllum illum nöfnum.

Sagði að Blac Chyna hefði hótað henni

Raunveruleikastjarnan og snyrtivörumógullinn Kylie Jenner gaf skýrslu fyrir dómi í gær og rifjaði upp þegar bróðir hennar kom til hennar eftir heiftarlegt rifrildi hans og Blac Chyna árið 2016, sem endaði með því að hún miðaði á hann byssu.

„Hann notaði orðin: „Hún var að reyna að drepa mig.“ Ég tók því þannig að þetta hefði verið upp á líf eða dauða […] Ég man að hann var í miklu uppnámi þegar hann var að útskýra hvað hefði gerst,“ sagði Kylie í gær.

Hún sagði að Robert hefði sagt henni að hann hefði verið að spila tölvuleik þegar Blac Chyna kom aftan að honum og vafði iPhone hleðslusnúru um háls hans.

Sjá einnig: Kardashian systur auðsýnilega ósáttar í dómsal vegna athugasemdar um kynlífsmyndband Kim

Kylie Jennre og Tyga voru sundur og saman frá 2014-2017

Var með fyrrverandi Blac Chyna

Blac Chyna, 33 ára, var í sambandi með rapparanum Tyga, 32 ára, frá 2011 til 2014 og eiga þau saman einn son. Tyga byrjaði með Kylie Jenner, 24 ára, árið 2014 og voru þau sundur og saman til ársins 2017. Blac Chyna byrjaði með Rob Kardashian, 35 ára, árið 2016 og hættu þau saman seinna sama ár.

Kylie sagði fyrir dómi í gær að hún hefði eitt sinn vaknað upp við ógnandi skilaboð frá Blac Chyna.

„Hún sendi mér fullt af djöfla tjáknum (e. emojis) og sagði: „Tel niður dagana“ til að lemja mig,“ sagði hún.

Aðspurð af hverju hún tilkynnti ekki skilaboðin til lögreglu sagðist hún hafa litið svo á að þau væru innantóm.

Hún sagði einnig að Tyga hefði tjáð henni að Blac Chyna glímdi við fíkniefna- og áfengisvanda og sagði henni frá atviki þar sem Blac Chyna átti að hafa skorið hann með hníf. „Ég hélt að hún væri kannski undir áhrifum,“ sagði Kylie um ástæðuna fyrir því að hún hefði ekki tilkynnt hótanir Blac Chyna til lögreglu.

Rob Kardashian og Blac Chyna voru saman árið 2016.

Telur hana aldrei hafa elskað bróður sinn

Snyrtivörumógullinn sagði að hún hefði haft efasemdir og áhyggjur af sambandi bróður síns og Blac Chyna. Hún sagði að hún hefði vonað að Blac Chyna elskaði Rob í alvöru, en að hennar mati hefði það verið augljóst að hún hefði verið að nota bróður hennar til að hefna sín, og fyrir frægð og frama, þegar hún hótaði honum líkamlegu ofbeldi.

„Ég skil ekki hvernig er hægt að elska einhvern og gera þeim þetta,“ sagði hún um atvikið árið 2016. „Þess vegna leit ég svo á að sambandið væri feik.“

Blac Chyna gaf skýrslu fyrir dómi í síðustu viku og sagðist „bara hafa verið að grínast“ þegar hún setti snúruna um háls Rob og miðaði „byssunni upp í loft.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Fyrir 3 dögum

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar