fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Birtir persónulegt samtal Kanye West og Pete Davidson – „Er í rúminu með konunni þinni“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Mánudaginn 14. mars 2022 12:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erjur Kanye West, eða Ye eins og hann heitir í dag, og Pete Davidson, hafa náð nýjum hæðum. Vinur Pete og grínistinn Dave Sirus birti skjáskot af meintum skilaboðasamskiptum Pete og Kanye.

Deilurnar milli þeirra hafa staðið yfir um nokkurt skeið, en Kanye hefur verið sá sem hefur gert þær opinberar og hefur verið iðinn við að láta Pete heyra það á samfélagsmiðlum. Fyrir rúmlega viku síðan gaf Kanye út nýtt tónlistarmyndband þar sem hann „grefur Pete lifandi.“

Sjá einnig: Stormasöm helgi hjá Kanye West – Kallaði Pete Davidson fávita og birti persónuleg skilaboð frá honum

Pete er í sambandi með raunveruleikastjörnunni Kim Kardashian, fyrrverandi eiginkonu Kanye. Þau standa nú í skilnaði sem hefur dregist á langinn vegna mótmæla Kanye. Fyrir rúmri viku breytti Kim nafninu sínu og heitir nú Kim Kardashian en ekki Kim Kardashian West og hefur hún fengið dómara til að lýsa því yfir að hjúkskaparstaða hennar sé einhleyp, þó svo að enn eigi eftir að ganga frá eignaskiptum og forræði barnanna áður en lögskilnaður er að fullu frá genginn.

Á sunnudaginn deildi Kanye nokkrum myndböndum á Instagram þar sem hann var að saka Kim um að nota dóttur þeirra, North West, gegn honum ásamt öðru. Hann deildi einnig myndbandi af sér biðja til Guðs og sagði Pete ögra sér.

Í kjölfarið birti Dave Sirus, sem er góður vinur Pete og hefur unnið með honum við Saturday Night Live og King of Staten Island, nokkur skjáskot og skrifaði með: „Skilaboð frá Pete.“

Skjáskot/Instagram

Skjáskotin eiga að vera af samskiptum Pete og Kanye. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Dave birtir skilaboð af hálfu Pete, en hann gerði það einnig þegar grínistinn vildi tjá sig um andlát Bob Saget í byrjun árs 2022.

Samkvæmt heimildum E! News eru skilaboðin alvöru, en hvorki Pete né Kim hafa tjáð sig um málið.

„Geturðu vinsamlegast slakað á. Klukkan er átta um morguninn og þetta þarf ekki að vera svona. Kim er bókstaflega besta móðir sem ég hef kynnst. Það sem hún gerir fyrir þessi börn er ótrúlegt og þú ert svo fokking heppinn að hún er móðir barnanna þinna. Ég hef tekið ákvörðun um að hætta að leyfa þér að komast upp með þessa hegðun gagnvart okkur og ég ætla ekki að þegja lengur. Þroskastu,“ á Pete að hafa sent á Kanye.

Kanye spurði þá: „Hvar ertu núna?“

„Er í rúminu með konunni þinni,“ sagði Pete og sendi honum mynd af sér.

Pete bað rapparann um að hitta sig, bara þeir tveir saman til að ræða málin en Kanye vildi að hann myndi koma í kirkju með sér, eða „Sunday Service“ sem hann stendur fyrir.

„Þetta er ekki fyrir alla að sjá. Ég er ekki hérna fyrir myndirnar og fjölmiðlana sem er greinilega það eina sem þú hugsar um. Boð mitt stendur ennþá. Ég vildi óska þess að þú myndir vera karlmaður svona einu sinni,“ sagði Pete og sagðist einnig glíma við andleg veikindi.

Glöggir netverjar hafa tekið eftir því að Pete virðist vera búinn að húðflúra nafn Kim á bringu sína, en parið opinberaði samband sitt á Instagram á föstudaginn. Kim birti tvær myndir af þeim, ýttu á örina til hægri til að sjá myndirnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta
Fókus
Fyrir 2 dögum

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Kanye West ætlar í klámið

Kanye West ætlar í klámið
Fókus
Fyrir 2 dögum

Leitar sér hjálpar vegna Ozempic notkunar eftir ákall áhyggjufullra aðdáenda

Leitar sér hjálpar vegna Ozempic notkunar eftir ákall áhyggjufullra aðdáenda